Laugardagur, 11. desember 2004
Spammið gerir þó eitt. Það fær mann til að lesa gamlar færslur. Ég, persónulega, myndi frekar kjósa ekkert spam.. en þar sem ég get ekki haldið í við þetta og get ekki breytt síðunni vegna tæknilegra mála.. þá leik ég þennan Pollýönnu leik. - Reyni að finna ljósa punktinn.
Ég er búin að græja jólin að mestu leyti. Á eftir eitthvað smotterí sem ég klára í fyrramálið. Já.. nei. Ég á reyndar eina gjöf eftir. Hún er ekki háð opnunartímum verslana.
Manninum á desktoppinu finnst ég vera mamma dauðans af því ég læt tólf ára stelpuna mína ferðast í strætó, læt börnin taka sjálf til í herberginu sínu og leyfi syni mínum ekki að eiga glerflöskur af veitingastöðum.
Ég þori varla að segja honum að ég læt þau hylla mig á hverjum morgni og ef annað þeirra er ekki búið að búa um fyrir klukkan sjö á morgnanna læt ég þau taka 50 armbeygjur. Bæði.