Þriðjudagur, 21. desember 2004
Í hádeginu fór ég að versla jólamatin. Hlustaði á Wham á leiðinni. Edge of heaven. Vá hvað ég var fegin þegar ég var búin að versla. Sérstaklega þegar ég var búin að dragnast með þetta upp á þriðju hæð í lyftulausa húsinu mínu.
Mitt næsta bragð verður að kaupa púsluspil þessara jóla, sem verður Castle Of Horror. Hvað ég hlakka til að setjast niður í rólegheitunum og púsla. Háma í mig konfekt og hnetur og skoða því niður með jólaöli. Úff alveg.
Þetta er búið að vera ferlega stress laust eitthvað hjá mér undanfarið. Ég er búin að kaupa allar jólagjafir, búin að pakka inn, búin að þrífa, búin að þvo, búin að öllu - nema kaupa servíettur..
-og ég var að fatta að ég þarf ekki að kaupa þær. Það fylgja þessar líka fínu servíettur dúknum sem ég verð með um jólin.
Ég er búin að öllu.
Nema kaupa jólatré. Það verður ekki gert fyrr en á Þorláksmessu, eins og venjulega.