www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í rusli
Fimmtudagur, 09. desember 2004

Ég á ruslið þessa viku. Í gær ákvað ég að kíkja á ruslatunnuna, fyrst það var komið miðvikudagur. Það á að skila ruslinu af sér í góðum málum á sunnudagskvöldi í þessu fjölbýli sem ég bý í, og það tekur yfirleitt þrjá daga að fylla tunnu. - Á virkum dögum. Ég tala af áratuga reynslu.

Ég fór niður í ruslageymslu en það voru bara þrír pokar í tunnunni. Þar sem ég átti ekki von á þessu stóð ég eins og fáviti í smá stund, svona eins og til að melta þetta stórfurðulega fyrirbæri, þegar inn í ruslageymsluna til mín kom maður sem býr í blokkinni. "Það er allt stíflað held ég", sagði hann og henti poka í ruslatunnu. "Ha?", sagði ég og gaf með því til kynna yfirburða gáfur mínar og skarpskyggni. "Já, það er allt stíflað, ég hef lent í þessu áður" svo fór hann upp og ég eiginlega hálf elti hann.

Hann opnaði lúguna á fyrstu hæð og mikið rétt! Þarna var allt stíflað. Hann byrjaði að toga pokana úr lúgunni og leggja þá á gólfið. Með pokunum kom ýmislegt ógeð sem ég reyndi að taka upp jafnóðum og koma fyrir í pokum sem voru ýmist opnir eða rifnir. Á myndinni má sjá magnið af rusli sem var fast í rennunni. Það var nóg til að fylla tvær ruslatunnur þegar upp var staðið.

140_4073.jpg

Ég vil beina þeim vinsamlegu tilmælum til fólks sem býr í fjölbýli að drattast til að binda fyrir pokana áður en það hendir þessu hugsunarlaust niður rennuna. Ég og þessi nágranni minn vorum sammála um að við búum með fólki sem annaðhvort hugsar ekki, eða eru bara svona miklir sóðar. Ég veit eiginlega ekki hvort er verra.

Þetta er búin að vera æðislegur dagur so far, eða þannig. Spam er verkfæri djöfulsins og ódýrar þvottavélar líka. Reyndar fékk ég smá pick-me-up þegar kærastinn minn hringdi í mig en þar fyrir utan er ég þreytt og pirruð. Gæti verið á túr. Not that I would know this...

Til nágranna míns sem hjálpaði mér og losaði stífluna vil ég koma til skila miklu þakklæti. I owe you one.

Fyrir áhugasama þá er nóatúnspokinn þarna efst frá mér og takið eftir hvað er haganlega bundið fyrir hann. Það er nefnilega allt hægt, ef viljinn er fyrir hendi.


| anna | 22:42 |
comments

enda binda meyjur alltaf vel fyrir sína ruslapoka! angel

Nr. 1 | posted by: linda | 9.12.2004 | 23:35:53 | [+] |

Ég er ekkert sérlega imponeruð. Sé nefninlega stút af plastflösku gægjast upp úr nóatúnspokanum!!! HEFURÐU ALDREI HEYRT UM ENDURVINNSLU??? Ég er í sjokki. Taldi þig vera meiri manneskju. Ágætis hnútur samt...

Nr. 2 | posted by: ella | 9.12.2004 | 23:52:15 | [+] |

Ja hérna. Á nú að saka mig um UMHVERFISSPJÖLL???

Ég er manneskja sem fer með allt plast í sorpu og gef ágóðann! Ég er friggin móðir teresa þegar kemur að endurvinnslu! Fer líka með öll blöð í sorpu, ólíkt þeim sem búa í blokkinni með mér sem hendia þeim POKALAUST í ruslið.

Iss... jóla hvað.

Nr. 3 | posted by: anna | 9.12.2004 | 23:58:30 | [+] |

Ooojjjj!

Nr. 4 | posted by: ingólfur | 10.12.2004 | 10:36:29 | [+] |

Þetta á nú eiginlega heima á ljósmyndasýningu;

samtíminn í bullandi "neyslu".

Nr. 5 | posted by: Tony Clifton | 10.12.2004 | 11:35:32 | [+] |

Someone´s doing something right! Auðvitað eru þetta allt dauðans moronar að henda rusli í ruslið umflokkunarlaust en ég rak augun í ruslalúgulokið og ... vá! Það glansar langar leiðir og maður finnur lyktina af 50:50 Dofra/Þrifi og jólin bara komin! thumb up

Nr. 6 | posted by: Atviksorða-Anna | 10.12.2004 | 11:59:25 | [+] |

Við outsorsum þrifin á stigaganginum...

hehe

Nr. 7 | posted by: anna.is | 10.12.2004 | 13:24:03 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web