www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Höggbor með græjum
Miðvikudagur, 22. desember 2004

Í gær þurfti ég að bora upp hillu. Ég á borvél, rosa flottan höggbor en honum fylgja ekki græjur eins og borar og svoleiðis, sem oft er nauðsynlegt að hafa ef bora á holu í vegg. Ég hringdi strax í manninn á desktoppinu.

Hann á nefnilega líka höggborvél, en henni fylgja sko græjur.

Umrædd hilla á að vera inní svefnherbergi. Fyrir ofan rúmið. Þegar Maðurinn á desktoppinu kom, snaraði hann sér uppí rúm og við það datt borvélin mín á gólfið. Ég hafði verið með hana upp í rúmi fyrr um daginn, þegar ég komst að þessu með græjurnar - að þetta væri eiginlega ekkert hægt án þeirra, og alltaf betra að hjálpast að líka. Þegar vélin skall í gólfið fór hún í gang með svakalegum látum. Maðurinn á desktoppinu, hér eftir nefndur MAD, setti upp furðulegan svip. Spurði mig hvað í djöflinum þetta væri sem hamaðist af slíkum djöfulgang undir rúminu mínu. Mig grunar að hann hafi haldið að þetta væri soldið annað. Bygons.

Ég sagði að þetta væri höggborinn minn. Ekki batnaði svipurinn á MAD sem spurði mig hvað ég væri að hringja í sig fyrst ég ætti svo þennan líka svakalega höggbor sem ég geymdi undir koddanum mínum. Ég útskýrði fyrir MAD að það fylgdu engar græjur með mínum höggbor og náði með því að sefa hann nokkuð, enda er hans borvél töluvert stærri, flottari og með fleiri fítusa og miklu betra grip.

Ég var reyndar ekkert að segja honum að ég bað Ófeig líka um að hjálpa mér með þessa hillu en hann dritaði bara græjum út um allt og ekki rataði hillan á vegginn í gauraganginum. Nú er Ófeigur dáinn og ég veit ekki betur en að það sé búið að hola honum ofaní jörðina líka. Bygons.

MAD byrjaði að bora í vegginn og ég lét strax í ljós skoðanir mínar um hvernig þetta ætti nú að vera allt saman. Hillan ætti að vera aðeins ofar eða aðeins neðar eða aðeins lengra til hliðar. MAD tók þessu með stóískri ró og hélt áfram að vinna. Enda mátti ég éta allt ofaní mig og kyngja þegar hann var búin að þessu. Því auðvitað gerði hann þetta óaðfinnanlega. Að sjálfsögðu.

Nú er komin hilla fyrir ofan rúmið mitt. Næsta skref er að fara í Ikea að versla mér náttborðslampa einhvern. Hey! Eða kaupa eitthvað dót sem þarf að bora í vegg. Þá get ég hringt aftur í MAD og beðið hann um að hjálpa mér.

Mér líst reyndar miklu betur á það plan.


| anna | 15:04 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web