www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hjá Guði
Miðvikudagur, 01. desember 2004

Í gærkvöldi hringdi ég í Hörpu. Hún lét mig fá það óþvegið, hundskammaði mig alveg. Mér leið eins og asnanum í Shrek. Aðeins sannur vinur væri svona brútal.

Á einum stað í samtalinu sagði Harpa: "jesús Anna, af hverju ertu ekki búin að skella á mig?". Ég svaraði: "af því ég veit þetta allt saman, ég þekki mig svo vel. Þykir vænt um að eiga vinkonu sem þorir að skella þessu framaní mig, mér þykir svo vænt um þig Harpa."

Þegar ég var búin að tala við Hörpu var ég í hálfgerðu móki. Lá í rúminu og opnaði augun öðru hvoru, horfði fram. Harpa sagði að hún væri búin að fatta muninn á okkur. Hana langar í svolítið en mig langar ekki í það. - Ekki af því ég á það fyrir.. heldur vegna þess að ég þarf það ekki. Ekki eins og hún. She's got a point. Er það ekki neyðin sem kennir naktri konu að spinna? Nú hendi ég öllum fötunum mínum!

Niii

Áður en ég sofnaði velti ég því fyrir mér sem Harpa sagði. Fannst ég vera púki í smá stund og horfði illgirnislega út í tómið. Skömmu síðar fannst mér ég vera góð sem engill og þá sofnaði ég.

Á leiðinni í vinnuna í morgun kom ég við í kaþólsku kirkjunni og fór í skriftarboxið:

Anna: bless me father for I have sinned
Prestur: eh... sorry.. I get english paster
Anna: ó.. nei, ég tala íslensku, ég bara kann þetta ekki á íslensku, hef aldrei gert þetta áður
Prestur: ó, jæja, hvað er langt síðan þú komst að skrifta?
Anna: sko ég hef aldrei gert þetta áður en ég er með spurningu sem ég þarf að fá svar við
Prestur: Hvaða syndir plaga þig kæra barn?
Anna: jah.. syndir segirðu? Vá.. ég þarf að vera mætt í vinnuna klukkan níu, má ekki vera að því að telja það allt upp en ég get sagt þér hvaða syndir plaga mig ekki. Ég lýg ekki, nema á síðunni minni og þar er ég nú búin að vara fólk við, svo það er allt í lagi, er það ekki?
Prestur: Nei, það er alltaf ljótt að ljúga, þó þú segir fólki að þú sért að ljúga.
Anna: Ohh.. en ég girnist ekki konu náunga míns, ekki þræl hans eða.. ambátt, JESÚS! Væri nú samt alveg til í að fá konu heim einu sinni í viku.. en ég girnist enga uxa eða asna heldur.
Prestur: en þú leggur nafn drottins Guðs þíns við hégóma
Anna: ha? Ég trúi fyrir það fyrsta ekkert á Guð svo það er aukaatriði
Prestur: hvað ertu þá að gera hér?
Anna: ég þarf svo að vita hvað ég á að gera við hann Offa
Prestur: Offa?
Anna: já, mig langar svo að halda áfram að hitta hann
Prestur: farðu með 130 Maríubænir, get ekki hjálpað þér með hann Offa. Þú verður að finna út úr því sjálf.

Ekki fær maður svör hjá Guði.


| anna | 14:18 |
comments

Ég gerði það reyndar í hádeginu og svarið birtist mér - í Máli og Menningu, af öllum stöðum! thumb up

Svarið er hávaxið, bláeygt, guðdómlega myndarlegt og.. úff

Því næst var mér kippt á fætur og hent út. Þar sem ég stóð fyrir utan í kuldanum var ég beðin um að liggja ekki svona á hnjánum eins og hálfviti í verslunum þar sem fólk þarf að komast leiðar sinnar...

Ekkert má maður

Nr. 1 | posted by: anna | 1.12.2004 | 15:24:56 | [+] |

Hvernig lítur "úff" út ?

Ég þekki einn, nei tvo Uffe, en þeir líta báðir út eins of langtíma dópistar... lofar ekki góðu, ha ? doubt

Nr. 2 | posted by: tosi | 1.12.2004 | 18:34:25 | [+] |

Nei, svarið heitir ekki úff, meira svona.. úff.. -in a good way.

Nr. 3 | posted by: anna | 1.12.2004 | 18:39:30 | [+] |

HVERNIG DATT ÞÉR Í HUG AÐ SVARIÐ VÆRI AÐ FINNA HJÁ guði. HANN ER EKKI TIL EN ÁGÆTIS HUGMYND SAMT.

Nr. 4 | posted by: igor | 1.12.2004 | 21:14:09 | [+] |

Æ ekki skamma mig Igor. Ég er ekki í stemmara fyrir blammeringar, búin að þylja maríubænir í allan dag og er orðin þegjandi hás og pirruð. Samsama mér miklu meira með djöflinum en einhverju guðlegu þessa stundina. Letin mig lifandi að drepa.

Segðu mér Igor, áttu lén?

Nr. 5 | posted by: anna | 1.12.2004 | 21:23:35 | [+] |

Fyrirgefðu. Ég skamma þig þá bara seinna.

Ég hélt þú værir löngu búin að grafa þau upp.

Nr. 6 | posted by: igor | 1.12.2004 | 21:25:46 | [+] |

Já var það ekki umsamið?

Nr. 7 | posted by: anna | 1.12.2004 | 23:47:11 | [+] |

what ERTU FARIN AÐ DEITA ÓFEIG (OFFA)?????????????

Nr. 8 | posted by: edda | 2.12.2004 | 10:23:33 | [+] |

oh no! pirate sick evil what what what toungue cool weepy oh no! wave what

Nr. 9 | posted by: edda | 2.12.2004 | 10:29:43 | [+] |

love love love love love love love love love love love love love love love

Nr. 10 | posted by: anna | 2.12.2004 | 10:41:32 | [+] |

Og segir þú þá bara voff voff voff grrrrr......... colgate

Nr. 11 | posted by: edda | 2.12.2004 | 15:08:13 | [+] |

colgate

Nr. 12 | posted by: anna | 3.12.2004 | 0:46:46 | [+] |

Offi er fyrrverandi ástmaður minn sem er nú líklegast dauður. Finnst rétt að ég taki fram að ég átti ekki þátt í hvarfi hans. Nema ég sé svona óhugnarlega leiðinleg og annoying.

Ég er búin að finna mér annan mann en það endist nú líklega ekki lengur en í korter. Vitandi það spái ég því að ég muni setja upp sérstakt umsóknareyðublað bráðlega. Það verður hægt að sækja um að fara með mér á deit.

Gefa verður upp eftirfarandi:

Fullt nafn, eins og það er ritað í þjóðskrá, kennitölu, menntun, barnafjölda - aldur og kyn, skilnaðarfjölda - aldur og kyn, vottorð frá geðlækni, heilsufarsvottorð, skóstærð, símanúmer, netfang, heimasíðu (ef slíkt er til staðar) og viðkomandi verður að fíla woody allen og monty python til að koma til greina...

Nr. 13 | posted by: anna | 5.12.2004 | 4:27:17 | [+] |

djö... þá er úti um mig embarassed

Nr. 14 | posted by: edda | 5.12.2004 | 12:26:07 | [+] |

Þú ert allt of náskyld mér til að þú komir til greina hvort sem er Edda mín. wink Auk þess... ertu ekki stelpa? what

Nr. 15 | posted by: anna | 5.12.2004 | 12:29:57 | [+] |

Hva! Stelpa og stelpa hvað með það? Þú ert bara svo spennandi karakter........ cool

Nr. 16 | posted by: edda | 6.12.2004 | 13:41:50 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web