www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég mótmæli
Miðvikudagur, 22. desember 2004

Þar sem ég er búin að gera allt sem þarf að gera fyrir jólin, nema kaupa jólatré og ég geri það ekki fyrr en á morgun - it's like living on the edge, þá hef ég verið að velta því fyrir mér hvað ég á að gera við allan þennan frítíma sem hleðst upp ónotaður.

Fékk ég þá frábæru hugmynd að nota tímann í þágu góðgerða og ákvað í kjölfarið að taka mér mótmælastöðu og fara í hungurverkfall fram að jólum til að mótmæla þessu auglýsinga-drasli sem búið er að klína framan á morgunblaðið nánast daglega undanfarið.

Veit einhver hvar moggahöllin er til húsa? Þeir virðast vera búnir að flytja sig úr miðbænum. Ætli þeir hafi frétt af áformum mínum?


| anna | 13:44 |
comments

Við hliðina á Kringlunni.

Láttu vita ef þig vantar aðstoð - ég er alfarið á móti pappírspósti og hef því eitthvað að mótmæla ( i.e. tilvist sorpritanna hmmm ) colgate

Nr. 1 | posted by: Þór | 22.12.2004 | 14:33:05 | [+] |

ó, eru þau ekki farin upp að Rauðavatni ennþá? Virðast amk vera á hröðum flótta undan þer gnasher

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 22.12.2004 | 14:45:45 | [+] |

Hver er að kjafta frá maður! Glatað. Ætli prentsmiðjan sé á hjólum? doubt

Þór: Ég fer ekki framhjá nokkrum einasta manni. Í lazyboy stól á pallinum á gráa pallbílnum með leitarljósunum á toppnum og upphækkuðu dekkjunum. Ef þú ert í efa, kíktu þá inní bílinn. Ef þar er allt fullt af fransbrauðum er þetta rétti bíllinn. Ég er sko ekki í nema 5% hungurverkfalli. Það er í lagi að borða fransbrauð og drekka trópí. thumb up

Nr. 3 | posted by: anna.is | 22.12.2004 | 14:49:52 | [+] |

Ég djoína !

Skelli leisíbojjnum aftan á vespuna og tek með mér 30 fermetra skiltið sem ég geymi í kústaskápnum...

Nr. 4 | posted by: Þór | 22.12.2004 | 16:54:27 | [+] |

Snilld! Ég á nóg af fransbrauði og trópí! thumb up clown

Nr. 5 | posted by: anna.is | 22.12.2004 | 16:57:09 | [+] |

Trallalalala Moggahöllin er í næsta nágrenni við mig og síðast þegar ég sá hana þá var hún ekki á hjólum, en djöfull glitrar hún flott. thumb up

Nr. 6 | posted by: Þórlaug | 22.12.2004 | 18:00:11 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web