www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dugnaðurinn að drepa mig!
Laugardagur, 25. desember 2004

Ég er búin að henda leikföngum barnanna minna og ég gerði það á meðan þau sátu límd yfir Harry Potter. Ég er snillingur. Ég fór fjórar ferðir niður með dót í ruslið og geymsluna og þau litu ekki einusinni upp úr glápinu! Skyndilega finnst mér alveg þess virði að borga afnotagjaldið - þennan mánuðinn.

Allt í drasli í stofunni ennþá enda krakkarnir að horfa á Potter og ég er nú ekki það evil að ég slökkvi á kassanum og lemji þau til að þrífa stofuna. Leyfum myndinni að klárast fyrst.. svo verður engin miskunn sýnd!

Oh.. ég ætla að fá mér kaldan hamborgarahrygg og fara svo að púsla þangað til Harry er búin. Þá næ ég í svipuna...

Helvíti var gott að hvíla sig svona í dag. Ég kem tvíefld til leiks sem foreldri!


| anna | 21:38 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web