Þriðjudagur, 07. desember 2004
Í nótt var mig að dreyma ónefndan mann. Akkúrat þegar hlutirnir voru að fara nákvæmlega eins og ég vil að þeir fara.. þá hringdi vekjaraklukkan. - Sem væri ekki merkilegt ef klukkan hefði ekki verið fimm.
Ég á nefnilega útvarpsvekjaraklukku sem fór í fokk síðast þegar rafmagnið var tekið af blokkinni og ég hef ekki nennt að stilla hana aftur. Hún hringir á hverjum morgni klukkan fimm og það fer eftir því hversu fast ég sef hvort ég vakna við hana eða ekki.
Af hverju í andskotanum svaf ég ekki fastar í morgun? Og af hverju í andskotanum nenni ég ekki að taka klukkuna úr sambandi? Það veit sá sem allt veit að ekki nenni ég að stilla hana...