www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
DM
Sunnudagur, 05. desember 2004

Hann heitir DM. Hann veit ekki hver ég er, þ.e. anna.is. Ég vil ekki segja honum það - strax. Hann er 37 ára, barnlaus. Hann hefur gaman af því að ganga á fjöll, woody allen, hlusta á jazz, fara á söfn, ferðast erlendis og þá oftar en ekki.. ganga á fjöll. Hann er dökkhærður með brún augu, hávaxinn og með breiðar axlir. Dökka skeggrót. Líkari Cusack en Spacey. Hann notar gleraugu. Hann nuddar löngutöng meðfram vísifingri þegar hann er óöruggur. Hann hlær innilega og er kurteis við afgreiðslufólk.

Hann talaði við mig til klukkan fjögur í gærnótt. Til klukkan þrjú í nótt. Hann langar að hitta mig aftur.

Trúi þið á ævintýri?

ps. Ég held að Ófeigur sé dauður. Hann svarar engum símum.


| anna | 4:08 |
comments

Það bendir allt til þess að ófeigur sé feigur eftir allt saman. Farið hefur fé betra.

Nr. 1 | posted by: igor | 5.12.2004 | 11:16:31 | [+] |

og btw þá var ég spurður að því um daginn hvort ég héti ófeigur. Mér brá en varpaði skjótt öndinni léttar. Ástæða spurningarinnar var sú að mér hafði orðið fótaskortur á tungunni - orðin komu út á hvolfi - og setningin hljómaði í samræmi við það. Orðið ófeigur er víst orðið samnefnari fyrir fólk sem hefur takmarkaðan orðaforða eftir að anna.is fór að birta samskipti sín við ófeig á netinu.

Fyrirgefðu anna. Ég veit að það er erfitt að fá sannleikann um ástvini sína svona beint framan í sig en sannleikurinn er sagna bestur.

Látt´ann gossa.

Nr. 2 | posted by: igor | 5.12.2004 | 11:31:32 | [+] |

Glætan að svona maður sé til

Nr. 3 | posted by: Norn | 5.12.2004 | 19:46:12 | [+] |

Jú kannski var ekki búin að lesa þetta með áhugamálin

Nr. 4 | posted by: Norn | 5.12.2004 | 19:47:04 | [+] |

Norn: mamma segir að maður geti víst ekki fengið allt.

Igor: ertu í anna.is leshring?

Að vera ófeigur já.. það er mongo rugl.

Nr. 5 | posted by: anna | 5.12.2004 | 20:44:56 | [+] |

mamma mín vill að ég eigi kærasta heldur að þá yrði ég almennileg. Hún hefur slæmt minni

Nr. 6 | posted by: Norn | 5.12.2004 | 21:47:09 | [+] |

Já. Mamma segir líka: "æ það er svo erfitt ef maður er mjög ástfangin af þeim (kærustunum)". Hún er fylgjandi hagræðishjónaböndum, eða hvað það er sem sá óhugnaður kallast.

Ég segi nú bara.. no schitt Sherlock!!! Æ á maður ekki að fara og kaupa sér súkkulaði og kíkja á nýlistasafnið bara...

this sucks.. this is total bs.

Nr. 7 | posted by: anna | 5.12.2004 | 21:52:52 | [+] |

Norn: vissir þú að lykt af karlmanni vinnur gegn hrukkumyndun hjá konum?

Sem ég segi.. ef maður er karlmannslaus þá legst maður í súkkulaði, drykkju og ólifnað.. ekki er það að gera góða hluti fyrir húðina en ef maður hefur mann.. er það ekki að gera góða hluti fyrir geðið á manni.

Hvort er skárra, að vera hrukkóttur eða geðgóður? Þú ættir að vera miklu geðbetri Norn. Það er á kristaltæru að geðið á þér er farið fyrir lítið ef þú finnur þér mann. Er pabbi þinn á lífi? Býr hún kannski með honum? Mamma þín. Pjúra afneitun bara. Hún er komin af uppreisnaraldrinum (14 - 54) og hefur sætt sig við orðin hlut.

Skelfilegt þegar svoleiðis gerist.

Nr. 8 | posted by: anna | 5.12.2004 | 22:01:41 | [+] |

Hvaða súkkulaði gerir svona kraftaverk fyrir húðina?

Annars var ekkert að húðinni á mér á meðan ég drakk 4L af kóki á dag, reykti pakka af sígarettum og átti engar húðhreinsivörur utan lúx sápu. Það var ekki fyrr en ég hætti ólifnaðnum sem ég steyptist út. Fór einmitt í andlitsbað á tímabili sem ég reykti einn og hálfann fokking pakka á dag og konan dásamaði húðina á mér fram og til baka, átti bara ekki orð! Spurði mig hvaða vörur ég notaði til að þrífa mig. Ég svaraði sannleikanum samkvæmt: "þarf maður að þrífa á sér húðina í andlitinu eitthvað sérstaklega? Farðinn hverfur alltaf á meðan ég sef".

Nr. 9 | posted by: anna | 5.12.2004 | 22:26:42 | [+] |

Mér líst vel á Deutsche Mark fyrst honum finnst gaman að ganga á Woody Allen. Climb every mountain, la la lala clown

Nr. 10 | posted by: Atviksorða-Anna | 5.12.2004 | 23:12:13 | [+] |

HMM...

DM er bara 3" á hæð.

Er hann í félagi við bleika pardusinn og Mr. Unbreakable ? doubt

Nr. 11 | posted by: tosi | 6.12.2004 | 10:27:14 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web