Mánudagur, 27. desember 2004
Hvort er það sykurinn eða pillurnar sem valda því að bólurnar eru að mestu farnar? Þetta skelfir mig. Þarf ég í alvöru að taka inn a.m.k. 500 grömm af hvítum sykri daglega til að halda húðinni á mér hreinni????
Ljóta vitleysan.
Ég er komin með hálfgert ógeð á nammi og jólamat. Fór heim í hádeginu og fékk mér ristað brauð með osti. Drakk reyndar jólaöl með. Púslaði. Var að spá í að taka hluta af púsluspilinu með mér í vinnuna en hætti við. Það eru heilir tveir viðskiptavinir búnir að hringja hingað. Annar var að hringja í vitlaust númer..
Best að naglalakka sig.