Laugardagur, 25. desember 2004
Þetta var gott aðfangadagskvöld. Blaðamaðurinn borðaði með okkur og tók upp pakkana en svo varð hann frá að hverfa þegar nikótínfíknin var að bera hann ofurliði. Ég var svo vond að ég bannaði honum að koma með sígarettur með sér því hefði hann gert það.. hefði ég líklega reykt eins og strompur í allt kvöld.
Krakkarnir fengu rosa flottar gjafir. Doddi fékk m.a. "alla vondu kallana" úr spiderman frá afa úlf og krakkarnir fengu bæði sæng og kodda frá ömmu. Sængurver líka meira að segja. Fengu það í morgun svo ég gat græjað dótið fyrir kvöldið. Þvílíkur munur og nú geta þau hætt að bera sængurnar á milli þegar það er pabbahelgi. Við hin eldri fengum fáar en góðar gjafir. Ég fékk náttföt frá mömmu, peninga frá pabba sem ég fann eftir skemmtilegan ratleik, bók og diskókúlu eins og mig hefur lengi langað í frá blaðamanninum, engil frá Dodda, sem hann bjó til í skólanum, mynd af ketti með vængi frá Jóhönnu, DVD mynd frá afa, body lotion og eplaskurðartæki frá systur minni.
Maðurinn á desktoppinu kom þegar líða tók á kvöldið. Hann gaf mér úr og hálsmen í jólagjöf. Gjöf sem verður seint toppuð. Þegar hann fór gaf hann mér líka loforð. "Á næsta ári" sagði hann. Reyndar.. ef ég þekki hann rétt verður það í desember á næsta ári. Það verður þá bara þannig. We have all the time in the world.
Ef ég væri köttur, þá myndi ég mala.
Yndisleg jól.
Yndisleg jól.
Vona að ykkar jól hafi verið eins gleðileg og mín.
