Miðvikudagur, 01. desember 2004
Þetta var góður dagur í dag.
Ég er svo dauðþreytt núna að ég er við það að leka niður. Var að koma úr baði og Ófeigur bíður eftir mér uppí rúmi. Hann er að lesa War and Peace. Segir það nauðsynlegan þátt í að undirbúa sig undir það að vera í einhverskonar sambandi með mér. Ruglið í honum alltaf...
Hvað ég hlakka samt til að hjúfra mig upp að honum og kúra við hann í alla nótt. Ég hreinlega veit ekkert betra en að sofa með hann við hliðina á mér. Get ekki útskýrt það... feels like home.
Stundum, þegar ég horfi í augun á honum, segir hann mér það sem hann getur ekki sagt mér með orðum..