Á hverjum virkum degi..
Miðvikudagur, 01. desember 2004
..s.l. fimm ár, mörgum sinnum á dag, hef ég svarað símanum í vinnunni með því að þylja upp nafn fyrirtækisins og enda á nafninu mínu.
Af einhverjum ástæðum gerði ég það ekki þegar síminn hringdi áðan.
Ég svaraði bara: "Anna".
Ég veit ekki af hverju ég sleppti nafni fyrirtækisins í þetta skipti. Þegar ég svaraði vissi ég hvorki að síminn væri til mín persónulega né hversu viðeigandi það var að segja bara nafnið mitt.
Ég hef sagt það áður en í dag á það við sem aldrei fyrr: stundum gerast hlutir í lífinu sem ekki er nokkur einasta leið að sjá fyrir.
Ég er ennþá brosandi út að eyrum. Þetta var svo óvænt og svo skemmtilegt. Það eru dagar eins og í dag sem gera lífið þess virði að lifa því.