www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Við Vera
Fimmtudagur, 18. nóvember 2004

Það var meira ég sem endaði þetta samband okkar Ófeigs á sínum tíma, óvart auðvitað.

Ég er svosem ekkert hissa á því að hann komi ekki hlaupandi eftir göngustígnum á Ægissíðunni hrópandi "Anna" með útbreiddann faðminn. Svo er hann náttúrlega haltur eftir að hundurinn beit hann um daginn út á Geirsnesi. Ljótu villidýrin sem ganga laus þar. Hann hleypur ekkert á næstunni.

Best ég gefi þessu pásu. Hann er víst á leiðinni til Berlín að hitta fyrrverandi til að ganga frá einhverjum pappírum. Ég sé nú alveg hvernig það endar. Hún með tvíburana og hann einn hér. Þarf ekki kjarneðlisfræðing til.

Ég þori að veðja að hún verði ófrísk aftur á aðfangadag og ég sjái Ófeig ekki meir. Hann vill nú meina að það sé ekkert að gerast á þeim vígstöðvum og að hann þoli ekki tvíburana hvort sem er en ég sé í gegnum hann. Langar leiðir.

Auk þess veit ég sitthvað um Veru.

Hún tók við Ófeigi stuttu eftir að hann flutti frá mér. Þau eru búin að vera sundur/saman í tólf ár. Hún er naglasnyrtir sem hit the jackpot þegar hún fékk umboð fyrir gel í Þýskalandi. Keypti að lokum verksmiðjuna fyrir peninga sem hún erfði eftir frænda sinn sem bjó í Kanada og flutti með krakkana til Berlín. Markaðssetti þetta naglagel fyrir bóndakonur í Rússlandi og voila! Konan er milli. Maður ætti kannski að prufa að markaðssetja plokkara og útrýma yfirvaraskeggjum á rússnenskum bóndakonum líka.

Veit að þau voru í harðri forræðisdeilu. Hún vill að hann taki strákana aðra hvora helgi og komi í flugi þarna úteftir. Ljóta ruglið. Svo skil ég ekki alveg hvernig tvíburarnir geta verið fimmtán ára ef Ófeigur á að vera líffræðilegur pabbi þeirra því hann er bara búin að þekkja veru í fjórtán ár. Ég skil svo lítið og veit svo fátt. Má ekki gleyma því að Ófeigur á við stærðfræðiblindu að stríða, ég ætti kannski að benda honum á þetta?

Mér finnst þó punkturinn yfir i-ið vera að drengirnir eru svartir. Ófeigur er ekki svartur og ekki Vera heldur. Þetta er allt hið undarlegasta mál, frá öllum sjónarhornum...

Hún hefur kannski stungið koddum innanundir peysuna í fjóra mánuði og borðað mikið af kjötbollum í sósu með of mikið af matarlit og eignast "stór" börn sem kunnu að ganga? Ég veit ekki hvernig hún fóðraði þetta, kemur mér náttúrlega ekki við þannig lagað...

Ég er allavega hætt að reykja, hætt að grýta hlutum, hætt að öskra - mestmegnis og hætt að skilja nærbuxurnar eftir á gólfinu við rúmið. Hann gat sko eipað yfir því. Ég er líka hætt að elda kjúklingaréttinn sem ég plataði ofaní hann í tíma og ótíma og hann bólgnaði allur upp af og fékk heiftarlegan niðurgang á eftir. Ég hló mig máttlausa. Kom í ljós að hann er með ofnæmi fyrir karrí. Hvernig átti ég að vita það? Húmorinn hjá mér hefur lagast. Ég geri ekki lengur grín af fólki. Ég á örugglega ekki eftir að spyrja hann í tíma og ótíma hvað þrír plús átta eru, hann getur ekki lagt við eða dregið frá tölunni átta. Það er honum lífsins ómögulegt og ég gerði óspart grín að því.

Ég held að ég hafi í raun verið svona vond við hann vegna þess að ég þráði innst inni að hann væri góður við mig. Auk þess var hann alltaf að hreyta einhverju í mig. Þetta var allt einn stór misskilningur.

Hvað sem gerist er ég búin að setja hreint á rúmið...


| anna | 22:42 |
comments

thumb up

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 18.11.2004 | 23:25:20 | [+] |

ó mæ god

Nr. 2 | posted by: Jóda | 18.11.2004 | 23:26:34 | [+] |

Beggi minn, ég held hún sé ekki að bjóða ÞÉR að krumpa línið doubt

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 19.11.2004 | 0:17:02 | [+] |

Það virðast engin takmörk fyrir því hvað hægt er að gera við bang og olufsen síma þegar það er hreint á rúminu...

Nr. 4 | posted by: anna | 19.11.2004 | 13:13:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web