www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Unglist 2004
Laugardagur, 06. nóvember 2004

Ég fór að sjá unglist 2004 áðan. Snillingurinn hún systir mín sá um að undirbúa þetta event og hat's off to you Júlía. Þetta var mjög flott.

Tvær stelpur úr Iðnskólanum tóku lagið "I know him so well" og ég táraðist, enda tóku þær þetta rosalega vel. Sérstaklega rödd 2.

Margt flott sem þessir krakkar eru að gera. Það var t.d. kjóll þarna sem fékk mig til að fara í huganum niður í geymslu og grafa upp sníðagræjurnar mínar. Langt síðan það hefur gerst. Þegar sýningin var búin hafði ég tekið ákvörðun um að gefa sjálfri mér líkamsræktarkort í jólagjöf og eftir ca 2 mánuði af líkamsrækt ætla ég að fara að sauma mér einhver geðveik föt úr öllu þessu efni sem ég er búin að vera kaupa mér þegar ég fæ köst og ímynda mér að ég nenni að sauma á mig.. en hef svo hætt við vegna þess að ég er ekki í "kjörþyngd". Nú er ég reyndar í kjörþyngd.. en samt borgar sig að púla smá aður en ég fer að nenna að sauma á mig.. right?

Í kringlunni í dag rakst ég á góðhjartaða konu sem sá að ég er að drepast úr hor og vosbúð og hún bauð mér í hádegismat á morgun. Við erum að tala humar og hreindýr. Þegar ég segi að fólk sé góðhjartað.. þá er ég ekki að ýkja. Mæting klukkan ellefu.

Ég hlakka svo til. Samt.. akkúrat núna.. þá er eitthver helvítis tómleika tilfinning í mér. Ég er ekki svöng. Ég er ekki þyrst. Mig langar ekki einu sinni í sígarettu...


| anna | 22:25 |
comments

Annaðhvort ertu yfirmáta ástfangin eða í massa ástarsorg?? Mundu bara, það er alveg sama hvort er; það er skít sæmilegt að vera til.

Nr. 1 | posted by: Úllen Dúllen | 7.11.2004 | 1:28:57 | [+] |

Að vera til rúlar. Ég veit það alveg! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 7.11.2004 | 15:20:03 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web