www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sykurþörf
Þriðjudagur, 23. nóvember 2004

Rétt áðan langaði mig svo í eitthvað dísætt.. að ég fór niður í kaffihús og sagði:

"Góðan dag. Ég er að safna bólum. Hvað áttu fyrir mig?"


| anna | 16:18 |
comments

já gat nú verið, ertu kominn með skrattans bóluógeðin aftur.
jesus það á ekki af þér að ganga barn.
ætarðu að drepa okkur öll
angel

Nr. 1 | posted by: Ófeigur | 23.11.2004 | 17:27:38 | [+] |

Nei það á sko ekki af mér að ganga. weepy

Nr. 2 | posted by: anna | 23.11.2004 | 17:39:16 | [+] |

Mér finnst þú nú voða sæt með bólur. Sérstaklega þessar sem þú tókst myndir af um daginn og sendir mér í tölvupósti colgate thumb up

Nr. 3 | posted by: Harpa | 23.11.2004 | 17:57:00 | [+] |

Þær voru nú líka bjútifúl!

Nr. 4 | posted by: anna | 23.11.2004 | 18:30:00 | [+] |

eitt orð: Pensím! (einhver sagði líka tea tree olíu)

en nei, bíddu, þú varst víst að safna, sorrí clown

Nr. 5 | posted by: Hildigunnur | 23.11.2004 | 23:45:55 | [+] |

Allt svo fyndið í dag nerd

Nr. 6 | posted by: Guðrún | 24.11.2004 | 0:23:33 | [+] |

Bólur eru bara eins og kvef ekkert hægt að gera í þessu hefur sinn líftíma. Ég er sko búin að sannreyna þetta er búin að kaupa öll "töframeðul" sem eiga að virka en virka ekki. í dag er ég sannfærð um það að ef maður hefði aldrei notað neitt af þessu dýra velauglýsta drasli þá væri húðin á mér fullkomin.

Nr. 7 | posted by: Norn | 24.11.2004 | 0:53:38 | [+] |

Ég er búin að kaupa mér tea tree olíu og fer í gegnum svoleiðis í bílhlössum. Ég nenni ekki að pæla í þessu lengur, eins og kemur fram í "beauty is pain". Ég hef sætt mig við hlutskipti mitt í lífinu og hef snúið vörn í sókn. Þ.e., ég hvet þær til að fjölga sér...

Nr. 8 | posted by: anna | 24.11.2004 | 8:07:21 | [+] |

vó, tetréolía í bílhlössum laughing ég ekki koma í heimsókn til þín. Fýlan maður!

Pensímið virkar samt, snarstyttir bólutímann, verðandi unglingurinn minn var komin með bólur á ennið, þurfti svona viku en þær fóru, á 12 ára barninu. Hins vegar leiðinlegt að vera með það á sér, kremið dregst ekkert inn í húðina heldur er bara klístrað á. Þetta eru einhver fiskensím sem virka í þessu. Mínar (áður leiðinlegu vikutíma, yfirleitt) bólur hafa horfið á 2 dögum.

og nei, ég er ekki að framleiða pensímið, né heldur neinn sem ég þekki, að ég viti wink

Nr. 9 | posted by: Hildigunnur | 24.11.2004 | 12:16:24 | [+] |

Nú, er það eitthvað vesen? en hvað með landamæravörðinn???

Nr. 10 | posted by: Jóda | 24.11.2004 | 17:47:39 | [+] |

Ég læt nú ekki plata mig svona...

- landamæravörðurinn

Nr. 11 | posted by: Gränsvakten | 24.11.2004 | 20:02:47 | [+] |

Í svona hvað? Ég held að þú sért ekki landamæravörðurinn. Hvaða bíómynd varstu að segja mér frá í tengslum við kven innflytjendurna frá evrópu?

Nr. 12 | posted by: anna | 24.11.2004 | 20:06:23 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web