Þriðjudagur, 16. nóvember 2004
Ég fékk sent á msn um daginn slóð á Salad fingers flash animation síðuna og ég skoðaði fyrstu myndina sem heitir "Spoons". Mér finnst hún æðisleg, eins og hryllings ljóð. Nema.. Doddi heyrði þetta og sagði: "mig langar að sjá líka" og settist í fangið á mér. Ég spilaði þetta aftur fyrir hann. Doddi var gjörsamlega heillaður af salad fingers verunni og horfði aftur og svo einu sinni enn. Þá kallaði ég á hann í mat og hann varð að hætta að horfa á þennan.. subtle hrylling.
Þetta er náttúrlega ekkert hryllilegt per se.. samt eitthvað dreary við þetta allt saman.
Í morgun fann Doddi pening undir koddanum sínum. Enda sendi ég Tannálfinum sms í gær og krafist þess að hann mætti til vinnu þar sem Doddi hafði misst tönn. Það er ekkert sem mömmur geta ekki. Eh.. allavega fátt. Doddi varð himinnlifandi og eftir vinnu hjá mér í dag ætlum við út í bókabúð þar sem hann fann e.k. rýting (úr plasti) sem hann langar að kaupa. Nú vill hann missa fleiri tennur og það strax. Vildi að það væri svona ábótasamt fyrir mig að missa tennur.
Þangað til sit ég í vinnunni og dunda mér við að strjúka ryðgað hljóðkort sem ég fann í snjónum áðan hér fyrir utan.
Alveg einstök tilfinning.