Föstudagur, 12. nóvember 2004
(16:06:45) Harpa: Hildigunnur sendi mér moggagreinina
(16:06:52) Harpa: og ég sendi þér hana
(16:06:58) Anna: ég kíki
(16:07:04) Harpa: ömurlegt að vera "húsfreyjan á Haukagili
(16:07:10) Harpa: dísus
(16:07:18) Harpa: hljómar eins og gömul kelling
(16:07:21) Anna: "Harpa Eggertsdóttir, húsfreyja á Haukagili, minnist þess ekki að hafa séð haförn í byggð á sinni búskapartíð"
(16:07:25) Anna: hvaða rugl er þetta
(16:07:28) Anna: búskapartíð hvað
(16:07:30) Anna: jesús
(16:07:32) Harpa: LOL
(16:07:33) Anna: lemja þá
(16:07:42) Anna: sko
(16:08:03) Harpa: eins og mín búskapartíð sé síðan úr forneskju
(16:08:16) Anna: þetta er náttúrlega gróf móðgun
(16:08:20) Harpa: ég verð að semja klausu um þetta
(16:08:24) Anna: þú ert hérumbil unglingur
(16:08:31) Harpa: nákvæmlega
(16:08:36) Anna: átt fótum fjör að launa þegar unglömb eru leidd til slátrunnar!
(16:08:44) Anna: ljóta dellan
(16:08:48) Anna: þetta er samsæri
(16:09:04) Harpa: já en ég er svo búsældarleg að ég er alltaf sett á til lífs
(16:09:24) Anna: já
(16:09:28) Anna: og góð til undaneldis
(16:09:32) Anna: hvernig sem á það er litið
(16:09:34) Harpa: akkúrat
(16:09:37) Harpa: mjólka vel
(16:09:48) Harpa: með breiðar mjaðmir
(16:09:50) Harpa: LOL
(16:09:56) Harpa: hraustleg
(16:10:20) Anna: falleg
(16:10:21) Anna: skemmtileg
(16:10:24) Anna: gáfuð
(16:10:25) Anna: hlý
(16:10:33) Anna: náttúrlega rugl að fara að lóga þér
(16:10:43) Harpa: algert rugl
(16:11:14) Anna: ég á bara ekki orð til yfir þessu