Mánudagur, 22. nóvember 2004
-Fékk ég sms:
"Ég elska þig fallegastur :)"
Ég varð fyrst stórmóðguð því ég er ekki fallegastur, gæti verið falleg, fallegust.. en ekki fallegastur.
Nokkrum mínútum síðar fékk ég annað sms:
"Afsakid vitlaust numer :/"
Þá varð ég ennþá móðgaðri. Aldrei sendir mér neinn sms og segir að ég sé fallegust og í fyrsta skipti sem einhver sendir mér sms og segir að ég sé fallegastur.. er hann að senda í vitlaust númer!
Segi bara eins og Bulldog: This sucks! This is total bs!