www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ófeigur
Föstudagur, 05. nóvember 2004

Það er mjög frústreraður maður byrjaður að kommenta á síðuna mína. Þori að veðja að hann hafi komið heim úr vinnunni einn daginn, skellt 1944 rétti í örbylgjuofninn, kveikt á tölvunni og farið á Internetið, þar sem hann fann mig. Ólíkt öðrum karlmönnum sem lesa mig hefur hann ákveðið að prufa að fara "bitru" leiðina.

Það fyrsta sem ég gerði var að svara fyrir mig. Þegar hann hætti ekki að kommenta hringdi ég nokkur símtöl innan tæknigeirans, misnotaði aðstöðu mína og fékk upplýsingar um hver væri skráður fyrir ADSL- IP tölunni sem hann gefur upp og voila.. ég veit hver þú ert Ófeigur. Ég veit líka hvar þú átt heima.

Ég veit að þú býrð mjög nálægt mér. Svo nálægt.. að þú getur fylgst með því hvort ég er heima eða ekki.

Ég veit hvað þú ert gamall og ég veit hvernig þú lítur út.

Segðu mér bara hvað er að angra þig og hvort ég get hjálpað.

I aim to please..


| anna | 14:31 |
comments

ég hefni mín einn daginn,
þið eruð allar eins, allar eins weepy

Nr. 1 | posted by: ófeigur | 5.11.2004 | 20:02:03 | [+] |

Eins og hver er ég?

Nr. 2 | posted by: anna | 5.11.2004 | 20:05:13 | [+] |

þú minnir mig á gamla ástkonu mína, hún hét Schimarcky,,,,var sko frá Sovétríkjunum, en við kölluðum hana alltaf skirparann. Það var svona næst því að ríma við nafnið hennar.

Nr. 3 | posted by: ófeigur | 5.11.2004 | 20:20:10 | [+] |

Áhugavert. Og að hvaða leyti minni ég þig á þessa ástkonu þína?

Nr. 4 | posted by: anna | 5.11.2004 | 20:29:35 | [+] |

Mér líður eins og ég hafi eignast keppinaut.
Ég hélt að ég ein hefði einkaleyfi á að angra þig í tíma og ótíma og jafnvel valda þér sálarkvölum þegar vel liggur á mér what toungue

Nr. 5 | posted by: Harpa | 5.11.2004 | 22:43:16 | [+] |

Váá´- þetta er skerí. Ég bý líka einhversstaðar í vesturbænum. Ef þessi gaur verður vesen á ég Mauser með 4x kíki og verð ekki lengi að taka hann úr umferð. Svo get ég líka bara lamið hann voða mikið? Læt ekki vesenast í heimili sem afkomendur tóta búa á.

Nr. 6 | posted by: Ingólfur | 5.11.2004 | 22:56:59 | [+] |

Heyrðu nei, nú er ég orðin meira hrædd við Ingólf en Ófeig oh no!

Nr. 7 | posted by: Harpa | 5.11.2004 | 23:18:53 | [+] |

Æi hann er antík hólkurinn og ekkert víst um hvort fer fram eða aftur úr honum ef hleypt er af. En illt þykir mér að vita til þess ef varnarlaus einstæð móðir lendir í ásókn vondra manna. Slíkt er ekki hægt að horfa upp á aðgerðarlaus.

Nr. 8 | posted by: Ingólfur | 5.11.2004 | 23:31:01 | [+] |

Ófeigur er ekkert vondur maður, láttu nú ekki svona Ingó. Ég er auk þess á móti ofbeldi og vil ekkert að þú sért að berja menn hægri vinstri.

Mig langar samt að vita hvað er að angra Ófeig, hann lætur eins og ég hafi gert honum eitthvað.. en ég veit bara ekki hvað það er. Kannski er hann einn af þessum mönnum sem lætur það fara í taugarnar á sér hvað ég anda að mér miklu súrefni.

Svaraðu Ófeigur, af hverju minni ég þig á þessa ástkonu þína?

Nr. 9 | posted by: anna | 6.11.2004 | 11:18:12 | [+] |

Ófeigur ertu skotin í henni?
Fylgistu með henni? Hefurðu séð hana? Hver ertu maður - bíddu ertu maður?

Nr. 10 | posted by: edda | 10.11.2004 | 16:10:40 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web