www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Monster og undirföt
Þriðjudagur, 30. nóvember 2004

Það er búið að vera smá keis í gangi undanfarna daga á atvinnuvígvellinum. Á föstudaginn fór ég heim með kvíðahnút í maganum og var hálf lömuð alla helgina, með þetta hangandi yfir mér. Í gær kom nýr vinkill á málið og föstudagsmálið rísolvað. Þetta er þó bara rétt að byrja en ég er ennþá á lífi.

Æ svo er pósturinn að gera mig VITSTOLA! Helvítis spambottar út um allt sem fylla pósthólfið mitt af rusli dauðans sem verður til þess að ég nenni ekki að fara í gegnum póstinn minn sem veldur því að hinir og þessir eru farnir að senda mér evil sms og spyrja hvort ég sé orðin of fín til að svara tölvupósti frá þeim. Ég kem af fjöllum og kannast ekki við neitt. Kannski er skrímslið sem býr í baðkarinu mínu farið að éta rafræna póstinn minn, væri það nú ekki típískt. Það væri líka ekki það eina sem þetta helvítis monster étur hér á heimilinu! Ég á bara tvennar nærbuxur eftir!

Fyrst ég er farin að tala um skrímslið sem býr í baðkarinu liggur beint við að minnast á.. að það er einmitt vegna þessa skrímslis sem ég hef ekkert minnst á baðferðir mínar í langan tíma. Þær eru orðnar slíkur hildarleikur að viðkvæmt fólk myndi tæplegast halda sönsum við að lesa lýsingarnar. Það hefur nefnilega stækkað, skrímslið, og kemst ekki lengur fyrir í vaskinum á meðan ég baða mig.

Það er ekkert annað að gera í stöðunni en að henda nokkrum nærbuxum ofaní vesturbæjarlaugina og fá kvikindið til að mígreita þangað eða halda áfram að fara í sturtu. Kvikindið lítur hinsvegar ekki við öðru en orublú nærbuxum af dýrari gerðinni svo það er eiginlega ekki option.

Það á ekki af manni að ganga.

Annars fór ég heim í hádeginu. Borðaði það sem eftir var af brauðinu, sumsé sitthvorn brauð endann og drakk með því restina af mjólkinni, hálft glas. Fór á klósettið og notaði þrjú síðustu klósettpappírsblöðin, var sem betur fer bara að pissa. Þvoði mér um hendurnar með dreggjunum af handsápunni og þurrkaði mér í síðasta hreina handklæðið. Setti í þvottavél síðustu grömmin af þvottaefni sem ég átti og dreif mig af stað aftur í vinnunna. Þegar ég renndi inn á bílastæðið fór bensínljósið að loga á bílnum.

Getur verið að ég fái útborgað í dag?

ps. Ég neita að trúa því að það geti engin svarað getrauninni í movie hall of fame. Smá hint.. myndin sem um ræðir hefur áður komið við sögu í movie hall of fame...


| anna | 19:56 |
comments

Ég kem í það minnsta af fjöllum, hef ég séð hana? what

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 30.11.2004 | 21:19:46 | [+] |

Já ég held að það sé alveg á hreinu.

Nr. 2 | posted by: anna | 30.11.2004 | 21:39:24 | [+] |

Fjárans hmmm

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 30.11.2004 | 23:11:53 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web