www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Matarboð
Föstudagur, 12. nóvember 2004

Ég var hálf stressuð þegar ég stóð fyrir framan útidyrahurðina. Á nýlegu álskilti á hurðinni stendur "Ófeigur Marteinn Vilhjálmsson" og fyrir neðan er búið að skrapa yfir nafn en það er auðvelt að lesa hvað stóð.. "Vera Halldórsdóttir".

Hmm...

Ég þrýsti fingrinum á bjölluna og held hnappinum inni í dágóðann tíma áður en ég sleppi. Einhverstaðar hef ég minnst á að ég verð óörugg þegar ég stend við hurðir og er lyklalaus og það er ekki laust við að ég hafi verið mjög óörugg akkúrat á því augnarbliki sem Ófeigur, eða Offi eins og vinir hans kalla hann, kom til dyra með blautt hárið, í gallabuxum og skyrtu.

Offi: bað ég þig ekki um að vera í einhverju öðru en þú varst í í dag?
Anna: jú
Offi: ætlarðu að koma inn eða?
Anna: já
Offi: mongo föt sem þú notar [lokar hurðinni á eftir mér]
Anna: hvað er svona mongo við þau?
Offi: hallærislegt bara
Anna: þakkir
Offi: það var lítið

Hann fer undan inn ganginn og bendir mér með handapati á að fara inn í stofu, mælir mig út og hristir hausinn örlítið. Ég brosi og hristi hausinn líka en ekki fyrr en hann er farinn inn í eldhús... þaðan sem svakalega girnileg matarlykt leggur. "Fáðu þér að drekka", kallar hann úr eldhúsinu. Í einu horninu er hálf asnalegur skápur sem á líklega að þjóna sem bar. Lítur út eins og Ikea skápur sem búið er að mála aðeins of oft og er algerlega úr takt við allt annað í stofunni sem er annars mjög smekklega innréttuð.

"Helvítis asninn á allt nema Bacardi", segi ég í hálfum hljóðum. "Það er Bacardi í brúnum poka á borðinu", kallar hann úr eldhúsinu og í sömu andrá heyrist svakalega hátt brothljóð. "ANDSKOTANS DJÖFULS.. HELVÍTIS.. allt eins.. ALLT EINS!" öskrar hann, "viltu kók?", bætir hann við eins og ég hafi ekki heyrt djöfulganginn. "Já", kalla ég til baka og ranghvolfi augunum. Djöfulinn hef ég komið mér útí núna..

Þegar hann kemur út úr eldhúsinu er hann með svuntu. Á henni stendur "food is sexy and so am I"

Tacky...

Anna: flott svunta
Offi: skárri en þetta mongo rugl sem þú ert í
Anna: af hverju segirðu svona hluti við mig
Offi: jesús, á nú að fara að brjóta allt og bramla hérna? Vissi að þú værir brjáluð í skapinu.
Anna: whatever.. hvað er í matinn?
Offi: pulsur
Anna: ég vona að það sé ekki of mikil fyrirhöfn
Offi: hæfir tilefninu
Anna: jesús..

Hann hverfur aftur inn í eldhús og ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að fara eða vera. Gefa þessu séns? Ég blanda mér í glas. Hef ekkert betra að gera hvort sem er. Krakkarnir komnir í pössun hjá mömmu og í sjálfu sér er forvitnilegt hversu langt hann ætlar að ganga. Auk þess sem það eru augljóslega ekki pulsur í matinn, allavega ekki þær pylsur sem Íslendingar borða...

Ég fæ mér sopa og skoða mig aðeins um í stofunni. "Ég held að ég sé að fatta þetta með gaffalinn", kalla ég inn í eldhús, "var búin að gleyma.. hafði þetta svona svakalegt impact á þig?", kalla ég aftur á meðan ég skoða grafíkmynd af naktri konu í glannalegum litum sem hangir yfir skenknum, "gerði það ekki til að hræða þig, þú varst bara búinn að gera mig svakalega reiða þetta kvöld", held ég áfram annars hugar, er að leita að listamannsnafninu á myndinni.

"Reiða?", heyri ég hann segja fyrir aftan mig, mér varð hálf hverft við og örlítil lögg úr glasinu hellist á dökkt parketið. "Þú varst snargeðveik þetta kvöld get ég sagt þér. Snargeðveik, svo ekki sé meira sagt". Hann lyftir glasi eins og til að skála. "Skál", segi ég og læt glasið mitt mæta hans. Við fáum okkur bæði sopa. Hann leggur glasið sitt frá sér á skenkinn, tekur glasið mitt og kemur því fyrir við hliðina á sínu, stendur grafkyrr og horfir í augun á mér.. "af hverju stakstu gafflinum í símaskránna? Þú vissir alveg að ég var að grínast. Hvað átti ég að halda?" Ég horfi í augun á honum og áður en ég veit af er hann kominn alveg upp að mér. "Ég.. ég var bara pissed off..", hálf hvísla ég.. "þú.. þú getur verið svo..."

"Maturinn", segir hann um leið og hann myrðir mómentið.. grípur glasið mitt og réttir mér það áður en hann hverfur inn í eldhúsið aftur. Úff.. shit.. fokk.. ég fæ mér sopa úr glasinu áður en ég elti hann inn í eldhús.

Anna: ég get þetta ekki
Offi: hvað? sýnist ég sjá um alla vinnuna hérna [brosir kankvíslega og blikkar mig á meðan hann hrærir í því sem mér sýnist vera sósa]
Anna: [legg glasið frá mér við hliðina á eldavélinni] æ.. þú veist hvað ég meina

Þrúgandi þögn. Hann veit hvað ég meina. Spurning hvað hann gerir. Ég veit hvað hann gerir. Who the hell am I kidding...

Offi: Nei, ég veit það ekki. Á ég að fela hnífapörin núna eða?
Anna: jesús, [hækkar röddina] cut me some slack! Það var nákvæmlega svona sem þú náðir mér upp síðast
Offi: [nær í lok af pönnu og ber fyrir andlitið] nú kemur það..
Anna: æ fokk you maður, ég er farin

Áður en ég náði útidyrahurðinni greip hann í mig og gerði svolítið sem rifjaði upp fyrir mér hvað ég var að gera þarna in the first place.

Þegar ég kom heim sá ég nýtt sms í símanum mínum:

"betri i engum mongo fotum"

Ég sendi honum svar um hæl:

"in your dreams asshole"


| anna | 23:22 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web