www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Isn't it madness
Sunnudagur, 07. nóvember 2004

Ég var að tala við Hörpu í gær, í fyrsta skiptið síðan hún kom frá útlöndum, þegar dyrabjallan hringdi og eina manneskjan sem hefði mögulega getað fengið mig til að kveðja Hörpu gerði vart við sig í dyrasímanum.

Þegar ég sá Hörpu logga sig inn áðan gerðist eftirfarandi:

(00:06:45) Harpa: Hæ gella
(00:06:48) Anna: oh HÆ
(00:06:52) Harpa: ég er að skrifa ritgerðina
(00:06:55) Anna: Ég er svo glöð að sjá þig!!
(00:06:58) Harpa: er að mygla
(00:07:03) Anna: á ég hringja og trufla?
(00:07:06) Anna: klára síðan í gær?
(00:07:10) Harpa: já bíddu samt aðeins
(00:07:24) Anna: ok láttu mig bara vita
(00:07:26) Harpa: ég ætla að finna þráðlausa
(00:10:39) Harpa: háði einvígi við einkasonninn, held að hann sé nú að fara að sofa
(00:10:47) Anna: hehe
(00:10:47) Harpa: ég er kominn með símann í hendurnar

Ég er búin að sakna Hörpu og þegar hún kom heim fór hún strax að skrifa motherfucking ritgerðina og hefur látið mig afskiptalausa. Ég.. já það verður bara að segjast eins og er.. ég er eins og þriggja ára þegar ástandið er þannig. Ég þarf ákveðna athygli og ef ég fæ hana ekki.. þá á ég til með að eipa.

Nei ég er að ljúga. Held að Harpa geti vitnað um það að ef hún þarf frið til að læra þá læt ég mig hverfa, rétt eins og bóla í húðslípun. Var að skoða áðan í speglinum sko. Já og á meðan ég man. Það er þvílík viðbjóðs klóaklykt inná baði, sem kemur upp úr niðurfallinu á vaskinum, oj barasta. Ég sé fyrir mér rottur og klóakmaura...

Ég talaði við Hörpu í tvo klukkutíma og ég veit ekki hvort það var vegna þess að við vorum báðar svo þreyttar og orðnar hálf ruglaðar.. að við ákváðum dagsetningu fyrir brúðkaupið, enda sá ég svo fallega brúðarsenu á Unglist áðan, að ég táraðist. Ég er ekki í jafnvægi, augljóslega. Ég reyndar tárast alltaf í brúðkaupum, nema.. þegar ég hugsa út í það.. mínu eigin. Merkilegt. Bygons.

Æ ég er að rugla. Við ákváðum ekkert daginn. Við vorum að spjalla um það venjulega, lífið, tilveruna, karlmenn, eiginmenn eða réttara sagt.. sambýlinga, geðsjúklinga - rökrétt framhald, heimilisofbeldi sbr nýlegt morð, og hvað ég er dugleg að misskilja allt sem er sagt við mig. Sé ekki hlutina í réttu samhengi. Næ ekki heildarmyndinni. Þá kemur Harpa og lagar þetta allt saman. Útskýrir fyrir mér að það er ekkert skrítið að naglalakkið mitt sé alltaf allt í fokki ef ég naglalakka mig rétt áður en ég fer upp í rúm, og þar fram eftir götunni.

Ég sagði henni frá húðflettingunni minni og hún sagði mér hryllingssöguna frá Póllandi. Sagði mér líka hvað hún hefði grætt mikið af peningum á því að fara þangað. Ég henni frá draumnum sem mig dreymdi s.l. nótt og líka frá því þegar ég lá uppí rúmi og velti því fyrir mér hvaða líkur væru á því að ég væri vakandi in the first place.

Harpa er jarðtengd. Hún er bóndi. Hún kann á kindabyssu. Ég er ekki jarðtengd. Ég er ekki bóndi. Hvað í fjandanum er ég?

Já! Alveg rétt. Ég sagði Hörpu að mér leiddist bloggið mitt og ég nennti ekki að skrifa, hefði ekkert til að skrifa um, ég er of ánægð. "Þú ert ekkert ánægð", sagði Harpa, "þú ert drullu pirruð.. þú vilt bara ekki skrifa um það". "Humm.. það er punktur", sagði ég, "en ég er ekki kaldhæðin, ég sakna þess". "Góða besta, þú ert fullt kaldhæðin. Þú bara vilt ekki skrifa það heldur".

Harpa er inní hausnum á mér. Ég get ekkert annað en vonað að það fari vel um hana þar.

Hvað sem öðru líður þá er ég smátt og smátt að púsla saman mynd og þótt þetta sé ekki Heye púsluspil verð ég að segja að mér líkar útkoman so far, vantar samt tvö horn stykki og mökk úr rammanum, en þetta mjakast. Hvort ég lími þetta á krossviðarplötu og hengi það upp inní stofu er allt annað mál. -Ekki mitt að taka þá ákvörðun um það hvort sem er, a.m.k. ekki einhliða..

Harpa hefur ekki séð hvað ég er búin með en hún hefur hinsvegar ekki nokkra einustu trú á því að ég klári þetta púsluspil. Um leið og hún sleppir orðinu eftir þá yfirlýsingu segir hún: "í hvert sinn sem ég segi þetta veit ég að þú púslar meira og meira og áður en þú veist af.. verður þetta komið".

Getur verið að Harpa sé snillingur?

Ég held að Harpa sé James Bond villain og að hún eigi sér secret lair þarna í Vatnsdalnum og fullt af evil henchmen sem hjálpa henni við að rugla í heilabúinu á mér. That's it.. ég er farin að röfla. I'm gonna hit the hey..


| anna | 2:30 |
comments

Ég veit alveg að þú veist að þú ert snillingur.

Snillingar vita svona lagað. thumb up

Nr. 1 | posted by: anna | 7.11.2004 | 11:12:41 | [+] |

schnillingur par excellance! happy

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 7.11.2004 | 22:05:31 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web