Mánudagur, 15. nóvember 2004

Þegar ég kom heim í dag var ég þreytt. Jóhanna fór í karate og ég lagðist í sófann. Doddi lék sér með kubba. Ég vaknaði klukkan hálf átta og eldaði. Doddi sagði mér að hann hefði tekið mynd af mér á meðan ég var sofandi. Þegar ég náði í myndirnar af myndavélinni sá ég að hann tók 9 myndir af mér. Á meðan þessi mynd var tekin var mig að dreyma eitthvað af eftirfarandi...
Ég var með báða krakkana og stödd á e.k. úthverfasloti. Hlýtur að hafa verið magnað úthverfi vegna þess að í garðinum voru lömb rétt við stöðuvatnið. Í grasinu lá eitt svart lamb, glænýtt. Gestgjafinn, sem var kona sem ég hef ekki séð áður, bað mig að fjarlægja.. og ég man ekki nafnið á því sem hún kallaði þetta gums.. sem var út um allt á lambinu. Eins og rifsber og kavíar. Án gríns. Hún sagði mér að henda þessu í vatnið, sem ég gerði. Tókst samt að fylla aðra ermina á mér af þessu og sat heillengi við vatnið að tína þetta af upphandleggnum á mér.
Krakkarnir voru að leika við fullt af öðrum krökkum á meðan ég var að þessu. Ég tók lambið í hendurnar og bar það eitthvað.. fade to black.
Enter:
Húsið. Við erum stödd í barnaherbergi heimasætunnar sem er á aldur við Dodda. Hún á ekkert rosalega stórt herbergi miðað við húsið sjálft, eins og stofan sem er í íbúðinni sem ég er í. Það voru engar myndir á veggjunum, rúm, Fisher Price rafmagnsorgel sem var brúnt og leit út fyrir að vera eld gamalt, skrifborð, dúkkuvagn og krakkadót. Úr barnaherberginu fórum við niður stiga sem lá inní eldhúsið og stofuna. Á hillum allstaðar voru möppur og blöð, eins og þetta væri ritfangaverslun. Innaf þessu var vinnustofa gestgjafans og eiginmaður hennar var mættur á svæðið. Ég vissi ekki ennþá hvað ég var að gera þarna. Krakkarnir voru að leika sér og gestgjafinn vildi sýna okkur slide show af listaverkunum sem hún hafði búið til. Ég settist í sófa beint fyrir framan sýningartjaldið og áður en ég vissi af hafði ég sofnað. Ég lá með höfuðið á arminum á sófanum sem tengdi hann öðru sæti.
Ég lá í móki þarna þegar einhver settist í sætið alveg við mig, ég fann skyndilega rosalega góða lykt og eins og on instinct.. muldraði ég "hæ, þú lyktar svo vel" og reisti mig örlítið upp, brosti og fann fyrir skeggrót. Ég var með lokuð augu og allt í einu kyssti hann mig. Þegar ég opnaði augun brá mér, því þó ég þekkti lyktina þekkti ég ekki þennan mann. Ég hef samt séð hann, og ég þekki hann í alvörunni.. en ekki í draumnum. Ég glaðvaknaði og settist upp. Stalst öðru hvoru til að horfa á hann en var fljót að horfa eitthvað annað þegar augu hans mættu mínum.
Þegar sýningin var búin var okkur boðið inn í stofu þar sem allir fengu jólagjöf sem var pakkað inn í grænan glanspappír með rauðu skrauti og allar gjafirnar voru eins og stór hollenskur tréklossi í laginu.
Ég kíkti eftir þessum manni á meðan ég hélt á gjöfinni og þegar ég fann hann var hann ennþá brosandi.
Hér vaknaði ég.