www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
In your dreams
Sunnudagur, 14. nóvember 2004

Mig dreymdi svo furðulegan draum í nótt. Mig dreymdi tvær rottur. Þegar ég segi rottur.. þá er best ég útskýri það aðeins. Þetta litu nefnilega ekki út fyrir að vera rottur, en í mínum huga voru þetta rottur og ekki in a bad way. Þ.e. þó að þær væru rottur þá leit ég ekki svo á að þær væru hættulegar. Þær litu út eins og hamstrar nema eins og með apa andlit, rosalega stór augu og hrikalega sætar. Allavega.. þetta voru ekki beint gæludýrin mín.. meira svona.. jah.. þær voru bara og allir höfðu gaman af þeim.

Svo gerðist svolítið skrítið. Ein þeirra fer eitthvað að barma sér, svipað og gremlins.. og svo.. allt í einu.. stekkur lítil margfætla út úr feldinum á henni. Hún var rauð og sporöskjulaga og á örfáum sekúntum stækkaði hún og breyttist í ca 3 cm pöddu, bláa á lit og með humarhala sem var eins og einn og hálfur cm, ca 6 lappir og ennþá sporöskjulaga búkur. Ég var berfætt og þetta kvikindi, sem ég reyndar hafði ekkert illar bifur á, kom í áttina til mín. Áður en ég vissi af var það búið að ráðast á stórutá og bíta sig fast. Ég sleit hana af en hún réðist aftur á tánna og beit sig aftur fasta.

Hún beit sig fasta líklega fimm eða sex sinnum, og einu sinni á fingur á mér. Rotturnar mínar voru hálf hræddar og ég var orðin skíthrædd því ég hafði á tilfinningunni að þetta væri kakkalakki og að hann væri að planta eggjum í tærnar á mér...

What does it all mean?

Og annað.. af hverju er mig hætt að dreyma köngulær??

Jóhanna náði í einhverja draumabók og las að þegar manni dreymir dýr sem ráðast á mann gæti það þýtt niðurbælda reiði sem viðkomandi þarf að vinna úr. Ég verð nú bara að segja.. ef að padda á að tákna niðurbælda reiði mína hef ég náð töluverðum árangri í sjálfsvinnu. Fyrir örfáum árum hefði þetta verið fíll.


| anna | 14:20 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web