www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í símanum
Fimmtudagur, 18. nóvember 2004

Anna: halló?
Ófeigur: ég vil að þú hættir að skrifa um mig á þessa ljótu síðu þína
Anna: aldrei
Ófeigur: þú ert klikkuð
Anna: ekki vilja geðlæknarnir uppá kleppi meina það
Ófeigur: almáttugur!
Anna: láttu nú ekki svona

þögn

Ófeigur: ég er að fara til berlín um jólin
Anna: hvað ertu að fara að gera þar?
Ófeigur: hitta Veru

þögn

Anna: bíddu.. ég hélt að þú og Vera væruð hætt saman?
Ófeigur: það er auðvitað ekki verandi nálægt henni
Anna: af hverju læturðu hana þá ekki vera?
Ófeigur: hún er veruleikafirrt
Anna: er hún þá fyrrverandi?
Ófeigur: við þurfum að ganga frá pappírunum
Anna: hvernig má það vera?
Ófeigur: hættu
Anna: hvað? fer nærvera mín í taugarnar á þér?
Ófeigur: þú ert allt of mikil tilfinningavera
Anna: ég hélt að það væri Vera
Ófeigur: geimvera þá
Anna: þú ert verulega sætur..
Ófeigur: asni

Þögn

Anna: af hverju segirðu ljóta hluti við mig
Ófeigur: hvað? Viltu að ég sé að hringja í þig og segja að mér þyki vænt um þig eða eitthvað svoleiðis helvítis rugl?
Anna: er það rugl?
Ófeigur: of væmið fyrir mig.
Anna: svo þú segir að ég sé klikkuð og mongo og asnaleg í staðinn?
Ófeigur: já akkúrat, mér finnst það sætt

þögn

Anna: ljóti hálfvitinn sem þú ert ég hata þig
Ófeigur: djöfull ertu leiðinleg
Anna: láttu ekki svona, ég var bara að segja þér hvað mér þykir vænt um þig
Ófeigur: þú mátt ekkert segja svona, þú átt að vera dama
Anna: af hverju mátt þú segja svona en ekki ég?
Ófeigur: af því ég er strákurinn
Anna: æ fokk you
Ófeigur: elska þig líka
Anna: ha?
Ófeigur: heyri í þér.. [skellir á]


| anna | 22:20 |
comments

Anna var ég búin að segja þér að mér finnst þú vera "brill" colgate

Nr. 1 | posted by: Þórlaug | 18.11.2004 | 23:10:31 | [+] |

embarassed

Nr. 2 | posted by: anna | 18.11.2004 | 23:56:09 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web