Mánudagur, 15. nóvember 2004
Frá Hörpu:
Orðin klár í sögupróf, gott hjá þér. En þú gleymdir að segja frá hvernig þér gekk í næringarfræðinni!!!
Ég gæti aldrei fallið í næringafræði, ever.
Mitt svar væri skýrt og einfalt. Éta lambakjöt út í eitt og nógu mikið af því!! Drekka smá vatn og aðeins meiri bjór. (b- vítamínið sko....)
Ef þú færð leið á eintómu lambakjöti skelltu þá tóró bernessósu í pott og éttu með. Ef þú færð leið á bernes- prufaðu þá piparsósu og færðu þig svo yfir í bernes eftir þrjá daga. Rauðrófur skemma ekki fyrir. Slepptu rauðkálinu. Láttu svo kallinn vaska upp...... nei, nei nú er ég komin yfir í íþróttirnar....
Ég er að hugsa um að taka íþróttir í fjarnámi næsta haust, ertu með?
Við gætum horft á íþróttirnar í sjónvarpinu eða leikið svo Fifa 2003 í PS2 og skrifað eitthvað sniðugt til kennarans. Held það sé Ólafur Björnsson, bróðir Kristins Björns skíðamanns sem kennir.
Hey, en ekkert mál, krakkarnir eiga líka skíðabrettaleik
Nei sennilega verður það ekki komið í fjarnámi, þeir eru svo bíond á Akureyri !! ;-(
Ég er að fara í síðasta profið á morgun, fél 303 en þá á ég enn eftir að klára félagsfræðilega könnun eða rannsókn til að fá áfangann metinn. Var að hugsa um að kanna félagslegt atferli "human sapies sapies" í Reykjavík, en kennaranum fannst það of viðamikið verk. Sennilega hefur hann byggt mat sitt á verkefnaskilum mínum í vetur!!
Gaf mér þess vegna leyfi til að skila skýrslu um niðurstöður árangurs sauðfjársæðinga, þó það raunar flokkaðist undir náttúruvísindi fremur en félagsvísindi.
Hey, þetta gengur ekki. Ég er farin að misnota þitt blogg því mér gengur ekkert að koma upp bloggi hjá mér..... Var byrjuð á Blogger.com en er byrjuð að spá í MovableType, er bara soddan sauður ;-(
Kv, Harpa
| posted by: Harpa | 15.05.2003 | 1:04:05 |
--
Frá Önnu:
Mér líst helv vel á að taka íþróttir í fjarnámi næst. Lokaprófið verður að labba til Akureyrar! Já og blessuð vertu, ég er alltaf að hreyfa mig eitthvað. Áðan þá þurfti ég að *standa upp* til að ná mér í öskubakka!
Ég er líka að fara í síðasta prófið á eftir. Fer á Matrix reloaded eftir vinnu og svo beint heim að spila Primal í PS2. Held ég panti bara pizzu því ég trúi því að letin muni vera nálægt því að drepa mig þar sem ég er búin að vera svo dugleg þrátt fyrir króníska þreytu.
Ég óttast að heimsóknir þínar og innlegg á síðuna mína munu minnka þegar þú setur upp þína eigin blogg síðu og þessvegna kvíði ég fyrir því að þú hættir alveg að kommenta hjá mér. Það breytir því ekki að ég skal alveg segja þér til ef þú lendir í vandræðum. Ég er sko masókisti.
Þetta með hvort þú ert sauður. Sko. Skv. kenningum hef ég heyrt að maður sé það sem maður borðar. Þá myndir þú réttilega vera sauður og ég: fast, cheap and easy... Greinilegt að það er ekkert að marka þessa kenningu!
Annars er ég komin með magapínu og fer að pissa á 10 mín fresti, ég er svo stressuð fyrir þetta próf. Ég lenti svo illa í því í Iðnskólanum á sínum tíma því í deildinni sem ég var í var það til siðs að prófa úr hlutum sem ekki var búið að kenna okkur. Þessvegna las ég oft Vikuna og Mannlíf fyrir próf því það þjónaði sama tilgangi og að lesa námsefnið = engum.
Ég vona að dælan ráði við adrenalínið og ég fari ekki á límingunum í prófinu. Tek það í Iðnskólanum og ég reikna með að þar finnist jötungrip ef illa fer.
Gangi þér vel í prófinu!!!
| posted by: anna.is | 15.05.2003 | 12:14:57 |