Sunnudagur, 28. nóvember 2004
Ég lét krakkana ganga frá eftir sig eftir matinn í dag. Doddi stundi þungann á meðan hann skolaði diskinn og kom honum fyrir í uppþvottavélini, vorkenndi sér gríðarlega.
Anna: "Þú þarft að læra þetta einn daginn, dagurinn í dag er eins góður og hver annar"
Doddi: "ég þarf ekkert að læra þetta, ég ætla aldrei að gera þetta"
Anna: "en þegar þú ert orðinn stór, ætlar þú ekki að þrífa í kringum þig?"
Doddi: "nei"
Anna: "hver á þá að gera það? -Eða ætlarðu bara að búa í ruslahaug?"
Doddi: "það verður ekkert drasl, ég ætla bara að horfa á sjónvarpið"
[metnaðurinn mun ríða honum að fullu einn daginn]
Anna: "ætlarðu sumsé ekkert að borða?"
Doddi: "júts"
Anna: "og hver ætlar að elda?"
Doddi: "ég"
Anna: "og hver ætlar þá að ganga frá þegar þú ert búinn að elda? Ég lifi ekki að eilífu, þú áttar þig á því, einn daginn legst ég með tærnar upp í loft og steindrepst. Hver ætlar þá að ganga frá eftir matinn?"
Doddi: "þá ætla ég að eiga svona mat-skrúbbi-maskínu"
Anna: "en einhver þarf samt að setja diskana og glösin í hana"
Doddi: "ég ætla að eiga tvær svona mat-skrúbbi-maskínur"
[tvær, sjáiði - til öryggis]
Doddi er á þessum aldri..
Doddi: "Mamma, má ég fá vatn?"
Anna: "já"
Doddi: "gefðu mér þá vatn"
Anna: "náðu í það sjálfur"
Doddi: "mamma! mig vantar blöð til að lita"
Anna: "náðu í þau sjálfur"
Doddi: "mamma! Klæddu mig í skóna"
Anna: "gerðu það sjálfur"
Doddi: "mamma! má ég fá banana?"
Anna: "já, ef þú nærð þér í hann sjálfur"
Doddi: "ég get ekki opnað hann!"
Anna: "reyndu betur"
Doddi: "mamma! ég sálast úr hungri!"
Anna: "bjargaðu þér"
Doddi: "MAMMA!"
Anna: "það væri synd ef þú deyrð úr hungri þegar það er hnífur í hnífaparaskúffunni"
Doddi: "MAMMA! VILTU RÉTTA MÉR HNÍF!"
Anna: "náðu í hann sjálfur.."
..og ég er á þessu stigi uppeldisins.. "björgum þeim okkur sjálf". Það er það eina sem blífur. Doddi er einfaldlega komin á aldur.
Anna: "Doddi minn.. mundu, þeir hæfustu komast af."
Doddi: "mamma.. hvað ertu að tala um? Ég skil ekki"
Anna: "Það er ekki skrítið. Enda ert þú stákur og ég er stelpa. Þú átt eftir að reka þig oft á þetta á lífsleiðinni"