www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Breaking news!
Fimmtudagur, 18. nóvember 2004

Rétt í þessu:

Anna: Halló?
Ófeigur: viltu hætta þessu, gerðu það
Anna: hvað?
Ófeigur: þetta pappíradæmi er dna próf, ég veit alveg að ég á ekki tvíburana, mamma var löngu búin að segja mér það
Anna: ó
Ófeigur: hættu svo að skrifa um mig!
Anna: aldrei, þetta er frábært efni og ég hef ekkert annað til að skrifa um. Lifi svo viðburðasnauðu lífi.
Ófeigur: ég vildi óska þess að ég hefði aldrei litið þig augum
Anna: ég líka, sérstaklega þegar ég er nývöknuð á morgnanna
Ófeigur: þú ert svo mikill asni ég þoli þig ekki

þögn

Ófeigur: halló?
Anna: þú ert of vondur
Ófeigur: æææ..
Anna: hey bíddu, er með símtal á hinni línunni
Anna: halló?
Jude: hello, Anna?
Anna: yes, who is this?
Jude: it's me, Jude
Anna: my god..
Jude: just wanted to tell you, I owe you that dinner after all
Anna: YOU WON??
Jude: yes I did, and I'll be coming to Iceland next week, you busy?
Anna: hold on, I have a call on the other line
Jude: ok
Anna: Ófeigur?
Ófeigur: já
Anna: erum við on eða off?
Ófeigur: hvað ertu að meina? on off hvað? mongo rugl alltaf í þér
Anna: bara.. erum við on eða off?
Ófeigur: nenni ekki að tala við þig, sjáum til. Heyri í þér.. [skellir á]
Anna: Jude?
Jude: yes
Anna: when will you arrive?


| anna | 23:34 |
comments

LOL "mongo rugl alltaf í þér" Þetta er nú bara algjör massasetning laughing

Skrítið hvað sumar setningar geta hreinlega kveikt á hláturtaugunum. Þessi mongo setning er ein af þeim. Sjís ég man þegar ég hló heilt sumar (og gott betur, kannski nokkur ár, jafnvel ennþá) yfir setningunni "farðu í rassgat Oscy" úr bókinni "sumarið ´42" Eða hét árans bókin það ekki? Gvuð, ég er ekki viss. Whatever. Farðu í rassgat Oscy hefur mátulega mikið af errum og essum, það er málið held ég. Rosalega vel uppbyggð setning. Og hrynjandin maður! Skyldi Flosi Ólafsson hafa þýtt þessa bók, ég hef ekki gáð að því? Það var jú Flosi serm þýddi Bjargvættinn í grasinu og kom fram með orðið "prumpuhænsn" yfir fullorðin assholes. Flosi er snillingur. Þú líka Anna laughing laughing laughing

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 19.11.2004 | 0:29:20 | [+] |

Annars er snillingur náttúrulega ofnotað orð. Og hreint ekki fyndið nema með sch.

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 19.11.2004 | 0:31:06 | [+] |

þið eruð allar eins,
vælandi og öskrandi og sníkjandi pening af okkur karlmönnunum.

þessi síða er það mesa rugl sem ég hef séð, fyrir utan tvíburanana mína, þeir eru illa fatlaðir

Ég fór út á Geirsnef áðan, náði helv hundinum sem beit mig, skaut hann og grillaði (tók sko einnota-grill sem ég keypti í Essó með)
Helv rakkinn var helst til of seigur fyrir minn smekk, en það var þess virði að horfa á eigandann gráta við hvern bita sem ég fékk mér af höfðinum á hundinum.

Nr. 3 | posted by: Ófeigur | 19.11.2004 | 12:31:15 | [+] |

Jesús! Ófeigur! Þú ert hreint út sagt óhugnarlegur.

Nr. 4 | posted by: anna | 19.11.2004 | 12:40:57 | [+] |

ég veit ekki alveg með ófeig...ha? Þá er nú Jude skárri kostur (sýnist mér svona í fljótu bragði)

Nr. 5 | posted by: Jóda | 19.11.2004 | 14:28:37 | [+] |

Greinilegt að hann hefur lent á einhverjum brútal gold diggerum sem hafa greinilega verið illa haldnir skjólstæðingar geðhjálpar.

Hann er brenndur drengurinn. Augljóslega að ekki er allt eins og það á að.. vera.

Maður spyr sig hvort hægt sé að bjarga svona manni.. eða hvort það sé búið að brenna þá dellu endanlega í hausinn á honum.. að allar konur séu eins. Spyr mig líka hvort það sé endilega mitt hlutverk að bjarga honum. Það er ekki eins og ég geri miklar og óyfirstíganlegar kröfur til karlmanna. Þeir þurfa að hafa alla líkamsparta in tact og working, minnst einu sinni í viku, og ég vil að þeir séu on my side - eins og ég er á þeirra side. Er maður ekki að leita sér að "parter" í lífinu? Eru partners ekki on the same side? Ég þarf fyrst og fremst mann sem er góður við mig. For fokk sake! Er það svona friggin' erfitt??? Hvað heldur fólk að ég sé að meina þegar ég tala um að ég vilji mann sem er góður við mig?

Jude er náttúrlega safe bet þannig lagað. Nema.. ég er ekki viss um að ég myndi höldla það alveg nógu vel. Var að horfa á Notting Hill um daginn. Sé mig ekki alveg í þessu.. aukahlutverki sem maki...

Sjáum hvað gerist. Kannski gerist ég nunna. Það er möguleiki.

Nr. 6 | posted by: anna | 19.11.2004 | 14:42:30 | [+] |

Já.. og ég verð að vera sammála A-Önnu. Orðið "prumphænsn" er brill og var mikið notað á tímabili. Skítafíll líka. Ruslahaugalykt líka. Viðbjóður kemur í hugann. Einnig kaupmáli með klausunni: "gerist eiginmaður sekur um að leysa vind í nærveru Önnu mun viðauki 5b. taka gildi."

*Viðauki 5b: Hjónaband leyst upp. Án eftirmála. Samstundis.*

Mér finnst það bara sanngjarnt.

Nr. 7 | posted by: anna | 19.11.2004 | 14:51:53 | [+] |

Tíma mínum er oft varið við tölvuna. Fyrir utan coka cola er þetta ein mesta og besta uppfinning allra tíma. Innlit á þessa síðu þína, Anna, er orðin einn af föstu þáttunum í tilverunni. Skrif þín halda manni á þráðnum. Sífellt. Þetta er argasti hagleikur. Takk og haltu þínu striki.

Nr. 8 | posted by: agusto | 19.11.2004 | 15:24:15 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web