www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Biblíusögur
Fimmtudagur, 11. nóvember 2004

Ég sat í stól við sjúkrabeð mömmu í dag og beið dauðans. Skyndilega kom læknir sem sagði að við hefðum eitthvað verið að mis.. það væri bara ekkert að. Ekkert annað en stress og ofkeyrsla. Ætli hann hafi séð til mín á bílastæðinu?

Bygons.

Mamma hafði hinsvegar notað tækifærið og sagt mér söguna af því þegar hún áttaði sig á hversu brothættur einstaklingur ég er og hvað það væri mikilvægt að fara varlega að mér svo ég myndi ekki villast út á glæpabrautina. Sá líka eftir því að hafa ekki skírt mig Evu.

acv.gifÞað var víst þannig að mamma fór með mig í Kron á Hlíðarveginum einn haustdag þegar ég var þriggja ára. Í búðinni fann ég mér epli sem mig langaði í, en mamma sagði mér að hún ætlaði ekki að kaupa epli. Ég gerði auðvitað það eina vitræna í stöðunni og beit í eplið. Mamma trompaðist. Dró mig til verslunarstjórans og sagði honum frá því að ég ætlaði að stela af honum epli. Augljóst að mömmu er ekki treystandi fyrir húshorn! Hann brosti og vildi gefa mér eplið. Gott ef hann klappaði mér ekki á kollinn líka. Mamma hélt nú ekki. Dró manninn afsíðis og skipaði honum að halda yfir mér skammarræðu. Það mun vera Dr Spock. Manngarmurinn gerði heiðarlega tilraun til að láta mig fá það óþvegið, en gat víst vart bælt niður hláturinn því ég haggaðist ekki. Djöfull hef ég verið forhert. Hélt bara áfram að borða eplið og starði á hann á meðan ég kjamsaði á því með galopin augu sem voru auðvitað sakleysið uppmálað.

Ég er alveg hætt að bíta svona í epli í búðum. Enda er ég ekki nálægt því eins sakleysisleg ég var þegar ég var þriggja ára. Maður verður að þekka sín takmörk!

Ég er samt ennþá mikið fyrir forboðna ávexti. Sumt breytist ekki.


| anna | 18:30 |
comments

Ég stal einu sinni límbandsrúllu úr hillum KRON í Stakkahlíðinni. Eða meira svona tók hana óvart og suðaði um að rúllan yrði keypt alla leið að kassanum. Svarið var alltaf staðfast nei, svo ég var allt í einu komin út fyrir búðina með límbandið í annarri hendinni. Hin höndin hélt í hendi mömmu. Ég var búin að vera hugsa upp plott alla leiðina um hvernig ég gæti útskýrt límbandið.

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 11.11.2004 | 20:29:03 | [+] |

Vá hvað ég skil þig vel. Límband er svona must have á hverju heimili. Ég hef oft rekið mig á það. Hvernig útskýrðir þú þetta? Tók mamma þín nokkuð eftir þessu?

Nr. 2 | posted by: anna | 11.11.2004 | 20:37:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web