www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bara bensín
Þriðjudagur, 02. nóvember 2004

Fékk tölvupóst áðan, verð að segja að mér finnst þetta soldið góð hugmynd:

Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum Samkeppnisstofnunar.

Þeir viðurkenna það - en segja að málið sé fyrnt.
Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur- vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur.

Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun.
Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN!
Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín
-
þá kaupum við BARA BENSÍN.

Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, Við kaupum allt slíkt annars staðar.

Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ!
Þeir finna fyrir því.

Dreifðu þessu á þína vini - og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN.

Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".

Vilt þú láta hafa þig af fífli? Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN.

Almenningur

Félögin sem um ræðir eru: Skeljungur, OLÍS og ESSO


| anna | 9:42 |
comments

Ég held nú að þeim sé nokkurn veginn sama um þessa hliðarinnkomu sem kemur úr öðru en bensíni. Nær væri að versla við Atlantsolíu, sem tók ekki þátt í þessu verðsamráði.

Nr. 1 | posted by: Kristó | 2.11.2004 | 17:16:15 | [+] |

Ég veit ekkert um það, en eftir að ég tók upp breytta lifnaðarhætti kaupi ég hvort eð er bara bensín á bensínstöðvum. Fæst nokkuð annað þar? Fyrir utan kók og sígó?

Nr. 2 | posted by: anna | 2.11.2004 | 17:20:57 | [+] |

neheits! gnasher þeim er sko ekki sama um allt hitt. Þar taka þeir inn allan aðalgróðann nútildags! Styð hins vegar fyllilega að kaupa allan pakkann hjá Atlantsolíu, auðvitað er enn betra að kaupa ekki heldur bensín hjá þessum glæpafélögum...

Nr. 3 | posted by: Hildigunnur | 3.11.2004 | 0:55:29 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web