Sunnudagur, 21. nóvember 2004
Óli er orðinn þrítugur. Það er staðreynd. Við dönsuðum saman við True Blue með Madonnu. -Eða sko.. Madonna flutti lagið, hún var ekki að dansa með okkur.
Magga hafði rétt fyrir sér með Rúnar. Það er nákvæmlega ekkert hægt að finna að þessum manni, fyrir utan þrjár evrur. Freysi ætti að hætta að kalla flottar stelpur lufsur, já.. ég er bara ekki að fíla það og hefði hann kallað mig það..
...jah.. hann hefði líklega séð soldið eftir því. Ég er nefnilega ekki lufsa. Og ekki reyna að klína því framaní mig þegar ég segist lufsast til að gera þetta og hitt á síðunni. Að lufsast er ekki það sama og að vera lufsa.
Ég endaði á Thorvaldsen í kvöld. Alveg einstök upplifun. Tónlistin þarna er supreme. Ok ég er náttúrlega 33 ára, við skulum átta okkur á því. Ég er samt ekki 45 ára í mínípilsi og netasokkabuxum. Hvað ætli maðru geti púllað netasokkabuxur off lengi áður en það fer að verða sorglegt?
Lögreglu-landamæravörður í partíinu taldi mig ekki deginu eldri en 27 ára. Maður sem fílar Frank Sinatra og finnst hvað sem hann heitir.. gerpið þarna sem er alltaf að krúna og stæla Sinatra... honum finnst hann glataður - eins og mér. Ófeigur er reyndar sammála líka.
Þegar ég kom inn á Thorvaldsen fór ég beint á dansgólfið. Það mun vera tónlistin. En það var maður að dansa við mig sem.. jah... var með hendurnar út um allt og ég var ekki að fíla það. Miklu betra þegar landamæravörðurinn mætti á svæðið. Gaman að dansa við hann.
Nú sit ég og hlusta á Windmills of your mind með Sting og hugsa um.. ekki Jude.. ekki Ófeig.. heldur mann sem fékk mig til að vakna brosandi í morgun.
Mann.. sem gæti.. mögulega..
27 ára. Ætli það séu bólurnar? Verð eiginlega að fara að hætta á þessari hormónalykkju. Ég er ekki að meika þetta öllu lengur..
Finn svo mikla þörf fyrir að senda sms akkúrat núna.. en ég vil ekki vekja veika manninn í næsta húsi. Það væri bara ljótt. Þó ég sé alveg handviss um að ég gæti gert ýmislegt til að honum myndi líða.. aðeins betur.
note to self: laf. Ég bara verð að muna að blogga um það á morgun!