www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á meðan ég man..
Sunnudagur, 28. nóvember 2004

Ormakjúklingurinn ógeðslegi smakkaðist eins og kjúklingur. Engum virðist hafa orðið mjög meint af. Doddi fékk hita og það heltist yfir mig svo mikið slen að ég svaf í allt gærkvöld. Offi horfði á sjónvarpið og ég heyrði í honum í gegnum svefninn bölsótast yfir því að ég er bara með RUV og Skjá einn. Hann reyndi að vekja mig um hálf tíu, til að standa við sinn hluta samningsins. Það segir hann allavega. Skildi eftir orðsendingu hripaða á kassakvittun úr Nóatúni á koddanum:

"Þú ert ekkert venjulega mongo geðvond manneskja. Ef þú segir mér aftur að fara í rassgat næst þegar ég reyni að vekja þig, viltu að ég að taka þig á orðinu?"

Það er samt eins og mig minni að hann hafi komið og kúrt við mig í smá stund... þessi dúlla.


| anna | 14:43 |
comments

Sá myndina af kjúklingnum í fyrri færslu..

Man núna hvar ég hef séð svona...


....þetta er nákvæmlega eins og kjúklingurinn sem Hjalti frændi og fjölskylda átu á sínum tíma... þau veiktust uppúr því og dóu!

....EKKI BORÐA KJÚLLANN!!!!

Nr. 1 | posted by: dorinn | 28.11.2004 | 16:18:39 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web