www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
1944 eða 6
Fimmtudagur, 25. nóvember 2004

Ég og Ófeigur erum að spá í að byrja saman. Þetta væri svona hagræðis-samband. Hann er leiður á að borða bara 1944 rétti og ég er leið á skírlífi. Hittumst í dag á kaffihúsi og fórum yfir málið.

Ófeigur: Heitur matur minnst fimm sinnum í viku og bannað að hafa 1944.
Anna: ekki málið, sex jafnoft
Ófeigur: ertu snargeðbiluð kona!?
Anna: ég þarf kynlíf
Ófeigur: ohhh... var það nú ekki típískt

þögn

Ófeigur: 50 sinnum á ári, er það nóg fyrir þig? Hvað er það annars oft í viku?
Anna: fjögur og hálft skipti
Ófeigur: d.. hélt það væri miklu minna

þögn

Anna: ég vil að þú kyssir mig líka
Ófeigur: jesús.. ljóta ruglið.. og hvað? Á ég að leiða þig allt sem þú ferð líka og breiða ofaná þig á kvöldin? Ljóta helvítis mongo ruglið í þér alltaf
Anna: en þú gerir það svo vel
Ófeigur: skal kyssa þig þegar ég er fullur. Næsta mál.
Anna: en þú drekkur ekki
Ófeigur: akkúrat!
Anna: Ég vil líka að þú haldir utan um mig stundum
Ófeigur: æ hlífðu mér við þessu
Anna: finnst þér ég of kröfuhörð?
Ófeigur: ég skal hugsa málið en ekki gera þér neinar vonir
Anna: en ef ég fer að gráta?
Ófeigur: jesús [lítur í kringum sig] á nú að fara að gráta
Anna: nei, ég meina.. ef ég fer að gráta, ætlarðu að hugga mig?
Ófeigur: ætlarðu að verða eins og Vera? Vælandi og öskrandi öllum stundum? Heimtandi peninga fyrir mat og hreinlætisvörum? Ég tek ekki þátt í svona rugli.

þögn

Anna: ég er að meina ef einhver deyr eða eitthvað
Ófeigur: já þannig. Jú þá skal ég klappa þér á hausinn og rétta þér klósettpappír
Anna: þú ert svo rómantískur og hlýr maður
Ófeigur: talar eins og ég sé hommi, ljóta helvítis mongo rugl alltaf
Anna: æ láttu nú ekki svona
Ófeigur: er að verða of seinn niður í stjórnarráð, heyri í þér


| anna | 21:25 |
comments

smile

Fjögur og hálft skipti á viku. Það hlýtur að vera til Guð fyrst það er til stærðfræðiblinda.

Nr. 1 | posted by: anna | 26.11.2004 | 0:12:32 | [+] |

Hmm... ef 50 skipti á ári gefa 4.5 skipti á viku, þá eru 11.11111 vikur í árinu...

Það eru 525960 mínútur í árinu, eða 47336,4 mínútur í þinni viku.

Ef marka má íbúana á efri hæðinni, þá tekur hvert skipti c.a. 3 mínútur í raunheimi ( hljóðbært sour ). Það útleggst sem 3/10114,615 vika, eða 0,0002966 vikur.

Þinn heimur er 4.68 sinnum teygðari en raunheimur, og því færð þú að njóta Ófeigs í 14.04 mínútur í einu.

Bara 14 mínútur... tekur nú varla að slíta tölur og tína leppa fyrir það wink

Nei, ég hef ekkert betra við tímann að gera embarassed

Nr. 2 | posted by: tosi | 26.11.2004 | 0:51:25 | [+] |

laughing

Nr. 3 | posted by: anna | 26.11.2004 | 8:42:02 | [+] |

Hvurn andskotinn var karlgarmurinn að gera niður í stjórnarráð??

Nr. 4 | posted by: Kavalíerinn av Kaffisterkt | 27.11.2004 | 17:14:18 | [+] |

Sæll Ljenzherra.

Hvað karlgarmurinn var að gera niður í stjórnarráð remains a mistery. Hann neitar að segja mér við hvað hann vinnur. Er farin að gruna hann um að vinna undercover fyrir Bíbí, maður veit aldrei.

Þar sem þú ert landsþekktur Kavalíer.. hvað á ég að gera við Ófeig? Er honum viðbjargandi? Hvað vill hann með mig? Af hverju er honum svona illa við kynlíf? Getur þú varpað ljósi á hvað er að hrjá manninn?

Nr. 5 | posted by: anna | 27.11.2004 | 17:51:03 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web