Mánudagur, 18. október 2004
Eitthvað eru hlutirnir að skerpast í hausnum á mér - aðeins. Svaf yfir mig í morgun til klukkan hálf ellefu. Geri aðrir betur. Gat varla reist mig upp af koddanum fyrir vöðvabólgu og byrjaði daginn á að fá mér tvær ibufen og skola þeim niður með vatni. Fór í bað áðan og tók tvær ibufen + parkodin við hausverknum sem vöðvabólgan hefur getið af sér.
Mér líður ekki vel.
Þar fyrir utan er ég bara hress.