www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Væll skæll
Föstudagur, 22. október 2004

Tonight I'm tangled in my blanket of clouds, dreamin aloud.

Doddi koddi er orðinn veikur. Með hálsbólgu og hita. Jóhanna ætti skilið Fálkaorðuna fyrir þolinmæðina sem hún sýnir drengnum því hann verður voða vælin og lítill þegar hann er veikur. Ég er búin að borga óvissuferðina og fékk í dag ánægjulegan tölvupóst frá viðskiptavini sem keypti af mér Galdradúkkur óséðar. Nú er hún búin að fá þær í hendurnar og ætlar að panta fleiri.

Sem minnir mig á að ég var að spá í að setja upp barnaþrælkunnarbúðir heima í verkfallinu. Láta börnin mín framleiða fyrir mig Galdradúkkur í akkorði. Þau eru með svo litla fingur sem henta einkar vel í að snúa þeim við og svona. Þyrfti bara að kenna Jóhönnu á saumavélina, verð ekki nema örskot stund að því.

Fyrst þau eru farin að vinna þá rukka ég þau að sjálfsögðu um húsaleigu, mat, hita, rafmagn og nú síðast síma. Ég fer á hausinn þegar ég fæ næsta símreikning. Sumir eru komnir á hin alræmda símaaldur. Spurning um að kaupa sér headset með mæk hið fyrsta. Mælirðu með einhverju Beggi?

Nei ég er bara að rugla. Set ekki upp neinar þrælabúðir. Ég nenni því ekki.

Mig langar að vera heima hjá Dodda. Kúra við hann og hughreysta. Strjúka á honum hárið og greiða honum með lúsakamb. Fékk aðvörun frá dagvistinni í gærkvöldi að komin væri upp lús. Kemdi Dodda í gærkvöldi og hann hreinlega malaði á meðan honum fannst það svo gott. "Mamma, þetta er eins og þú sért að klóra mér í hausnum" sagði hann um leið og fór um hann unaðshrollur. Það er ágætt. Verður þá ekki vandamál að kemba drenginn. Fann enga lús, sem betur fer. Það væri nú eftir öllu ef maður fengi lús ofaná allt saman. Sambúð frekar en lús, anyday Norn. Í alvöru talað.

Fór heim í hádeginu og gaf þessum greyjum mínum að borða og hlustaði á Dodda kvarta yfir því hvað hann á bágt og hvað honum er kalt og hvað það er leiðinlegt að hafa ekki cartoon network, og að honum er soldið illt í puttanum og það er vont að kyngja og..

Hvaðan hefur hann þetta? Ekki mér.. niiii


| anna | 13:38 |
comments

Góða skemmtun í óvissuferðinni. Er í einni slíkri sem engan endi virðist ætla að taka. sick
En mig langar í galdradúkkur. Þarf aðeins að skoða betur til að gera upp við mig hvers lags dúkkur ég vil en ég vil.
thumb down thats me today. gnasher drunk thumb down

Nr. 1 | posted by: Þóra | 23.10.2004 | 11:57:35 | [+] |

Nei ég mæli ekki með neinu sérstöku, bara þægilegum headfónum. Ég geri ráð fyrir að hægt sé að fá svoleiðis í Tölvulistanum eða einhverju þannig.

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 24.10.2004 | 20:09:18 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web