www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Vítamín
Föstudagur, 08. október 2004

Eins og áður hefur komið fram er ég að fara í klippingu á eftir. Þegar ég er búin í klippingu ætla ég heim og athuga hvort ég geti komið íbúðinni í lag. Það vill nefnilega verða til mikið drasl þegar maður á börn heima sem leiðist.

Til dæmis var búið að taka rúmteppið mitt af rúminu mínu, sængina mína og koddann, sæng Dodda og koddann hans, alla púðana úr sófasettinu, kollana úr eldhúsinu og raða þessu upp í "hús" í stofunni þegar ég kom heim til mín í gær. Ég varð alveg rosalega þreytt þegar ég sá þetta, eldaði og fór snemma að sofa. Vill til að ég á tvær sængur og tvo kodda.

Ég er svo þreytt þessa dagana. Þjáist af krónískri þreytu. Líður eins og ég sé að bera vatn í lekri byttu þegar ég er að reyna að halda eitthvað heimili og hef ekki undan að kaupa mat ofaní þessi grey. Samt er aldrei neitt til að borða - segja þau.

Um helgina er ég í fríi. Þá mun ég reyna að vinna upp skil á verkefnum í skólanum en ekki fyrr en ég er búin að sofa í a.m.k. sólarhring. Ég veit ekki hvort ég á að nenna að taka til. Þegar ég hugsa til þess verð ég alveg rosalega syfjuð og langar í bað.

Kannski er þetta bara skortur á.. lífrænum bætiefnum.


| anna | 15:47 |
comments

Erum við að tala um að "fá sér kleinu"? evil

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 8.10.2004 | 20:04:37 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web