Sunnudagur, 03. október 2004
Ég vaknaði klukkan sjö í morgun. Setti reykingarlyktafötin í þvott og tók til eftir krakkana í gær.
Eftir gærkvöldið hef ég komist að því að ég vil ekki reykja lengur þótt ég sé að fá mér í glas. Í fyrsta skipti á ævinni líður mér illa í lungunum daginn eftir partý. Ég er búin að vera hóstandi frá því ég vaknaði. Við vorum þrettán og ellefu reyktu. Keðjureyktu. Alveg eins og ég gerði alltaf hérna einusinni.
Vá.. þeir voru ekki að djóka með þetta second hand smoking dæmi.
Ég hefði aldrei trúað þessu að óreyndu.