The things I do for..
Sunnudagur, 24. október 2004
Það hafa líklega allir heyrt the expression "stranger things have happened". Get lofað því að skrítnari hlutir en eftirfarandi hafa ekki átt sér stað, ekki í mínu lífi allavega.
Það var þannig að þegar ég vaknaði og var búin að blogga, þá fékk ég sms. Skeytið var frá manni sem ég þekki og í því stóð: "er nidra 101, drea er her, komdu strax". Vill til að ég lofaði honum (á fimmta glasi eitt kvöldið) að ég myndi láta draum hans rætast og sofa hjá Drea fyrir framan hann.
Getur verið að allir karlmenn séu eins?
Augljóslega lofaði ég þessu bara vegna þess að ég reiknaði aldrei með því að ég gæti uppfyllt loforð af þessu tagi, that goes without saying. Þökk sé tækni samtímans var loforðið tekið upp á gsm síma (hljóð og mynd) sem hefur verið spilað fyrir mig ca 108 sinnum. Ég er orðheldin manneskja og með sönnunargagn af þessari stærðargráðu átti ég ekki undankomu auðið. Vissi samt að líkurnar á því að Drea Matteo myndi vilja sofa hjá mér væru hverfandi. Vonaði það allavega.
Nú.. þegar ég kom inná barinn sat.. best ég kalli hann bara MB. MB sat við hlið Drea á barnum og það var eins og hann hefði fengið sér miiiiikið lýsi með bjórnum, svo breitt brosti hann.
Ég settist á barstól og pantaði mér tvöfaldann bacardi í kók sem ég þambaði nærri allt áður en ég blandaði mér í samræðurnar. Kom í ljós að MB hafði verið á bæjarþvælingi í gærnótt, ekki nennt að leita að leigubíl og bókað herbergi á 101 í staðinn. Þegar hann kom niður til að tékka sig út í morgun var átrúnaðargoðið, gyðjan sjálf: Drea Matteo á svæðinu. Hann komst ekki lengra. Var búinn að halda henni uppi á drykkjum og snakki í þrjá tíma þegar ég mætti. Kvartaði yfir því að ég hefði verið allt of lengi á leiðinni og þetta væri farið að kosta hann stórfé, sem var augljóslega mér að kenna.
Mér leið eins og lambi á leið til slátrunnar, reyndi að beila en hann spilaði fyrir mig blessað loforðið í 109. skiptið með gsm símanum og glotti. Ég spurði hvort hann væri búin að segja Drea frá þessum "díl", nei.. hann var svo hugulsamur að láta mér að eftir. Nú átti ég að sedúsa Sópranós píuna þarna á barnum. Jesús. Ef þetta er ekki mongo, þá veit ég ekki hvað.
Mér leiðist svona pikköpp ferli svo ég skellti í mér öðrum tvöföldum bacardi, snéri mér að Drea og sagði: "so.. wanna f**k?" (er að rembast við að halda í PG rating) Drea horfði á mig í ca 30 sek áður en hún svaraði: "sure, got a room?". Ég pantaði mér aftur í glas.
Korteri og tveimur tvöföldum seinna vorum við stödd í herbergi með tveimur rúmum. Hann er skrítinn þegar kemur að svoleiðis. Held að þetta séu leifar frá fyrra lífi þegar hann var Breskur lord. Bygons.
Drea settist á rúmgaflinn og spurði: "what's he doin'?". Ég var farin að kippa aðeins af öllu romminu, settist á stól og spurði: "eh.. can he watch?" -"Sure", sagði hún kæruleysislega og rótaði í töskunni sinni, "but no cameras. He can join in if he likes".
MB leit helst út fyrir að hafa dáið og farið til himna. Greinilega staðráðinn í að láta þetta ekki brjóta sig niður. Áður en ég vissi af var Drea búin að tæta sig úr öllu nema nærbuxunum og lá makindarlega uppí rúminu, horfði ögrandi á okkur. Við vorum bæði frosin. Hvort það var vegna þess að okkur leið eins og við værum í the twilight zone eða vegna þess að Drea lyktaði eins og ruslahaugur.. veit ekki.. en ég varð frekar fegin þegar MB bað hana vinsamlega að klæða sig í aftur. Við værum hætt við.
Hún hreytti í okkur einhverjum vel völdum fúkyrðum, sem ég hef ekki eftir, klæddi sig og fór út. Við nýttum hinsvegar aðstöðuna til hins ýtrasta þegar við vorum búin að lofta út. Þeir eru ekki að djóka með jersey og ruslahaugana. Hefði aldrei trúað þessu að óreyndu.
Þegar við komum niður í lobbí og vorum að tékka okkur út sá ég hinsvegar einu konuna sem er á to do listanum mínum. Gina Gershon. Ég leit á MB sem vissi nákvæmlega hvað ég var að hugsa...