www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The Boss
Laugardagur, 30. október 2004

Ég er komin heim. Var keyrð heim í þýskum eðalvagni af Jóni Jóni. Já.. ég er ekki spastísk, hann heitir Jón Jón. No kidding. Myndi ég ljúga svona löguðu?

Öll kvöld eiga sér hápunkt. Hápunktur kvöldsins í kvöld hlýtur að vera The Boss.. followed by, Finally.. followed by.. Le Freak. Ójá..

Who was, who was the boss..

Komst að því að karlmönnum finnst ákveðið efni, almennt, mjög perralegt.. í mjög jákvæðri merkingu þess orðs.

hehehe

scary.jpg"Ég vissi ekki að þú værir pönkari eftir vinnu, þú lítur svo sakleysislega út á daginn". Hvað get ég sagt.. What you see is what you get.. á ekki alltaf við...

-auk þess.. lít ég sakleysislega út?

Bygons.

Nú.. það sem raunverulega gerðist í kvöld:

Ég fór að afhenda blessuð verðlaunin, sem ég gerði af miklu öryggi (og með gleraugu) á háhæluðu skónum sem ég er búin að vera ganga til síðastliðna daga á meðan ég set í þvottavél og hengi upp. Það er ekkert grín að hengja upp á 13 cm hælum..
Hallgrímur Thorsteinson gerði mér samt grikk þegar hann bað mig um að tilkynna hver vann.. því ég var ekki viss.. svo ég sagði "er ekki betra að ég viti hver vann fyrst?" Hallgrímur hvíslaði því að mér.. og svo.. jah.. restin er history.

Kúdos Krummi!

Á eftir sat ég og kjaftaði við nokkra vef-menn og eina vef-konu, sem mér lýst reyndar mjög vel á og er sú eina sem gaf mér nafnspjaldið sitt. Ég kem til með að senda henni póst. Hinir ætla að hringja í mig í vinnuna. Það hringja allir í mig í vinnuna hvort sem er...

Fór á Rex, hitti þar mann sem ég þekki og vin hans, sem ég kynntist í kvöld. Já og Einar (Einar) - sem var í miiiiiiklu stuði. Kvartaði sáran yfir því að engin væri í stuði nema hann. Kjaftæði, ég var í stuði.

Ég skemmti mér konunglega, eins og fyrr sagði.. dansaði og kjaftaði við áhugaverða stúlku sem tók mig í crash kúrs í karlamálum. Þurfti á því að halda.. verulega, og þurfti að nýta mér þessa þekkingu fyrr en varði..

judebaby.jpg...því þegar ég steig út úr eðalvagninum sem ég var keyrð heim í.. beið mín óvænt sending við útidyrahurðina.. nemlig.. Jude friggin' Law.

Hann er búinn að drekka soldið mikið, er inná baði núna. Ef hann ælir hendi ég honum út. Hann er flottur.. en það eru takmörk.

Auk þess. Hann gerir ekki alveg sömu hluti fyrir mig og annar maður sem ég þekki...


| anna | 2:02 |
comments

Hvernig ferðu að ef maðurinn drepst þarna inni með dyrnar læstar?

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 30.10.2004 | 3:42:32 | [+] |

If you must know.. þá tók ég lykilinn úr skránni áður en hann fór inn. Eitt af því sem ég hef lært á langri ævi er... ég treysti engum.

Og btw... ég henti honum út. Það er ekki eins og ég reki gistiheimili hérna! Hann var búinn að þjóna sínum tilgangi.

MÚHOHOHOHOHO

evil

Nr. 2 | posted by: anna | 30.10.2004 | 3:46:14 | [+] |

Blessaður vertu. Ég lét sverfa rauf neðan á alla lykla í íbúðinni. Í neyð, þ.e. þegar ég fæ karlmenn heim sem læsa sig inni og neita að fara.. get ég opnað allar dyr utanfrá með klassísku skrúfjárni - og hent þeim út.

Enid Blyton? Wuse.. wink

Verst að þeim þykir eiginlega bara gaman þegar ég þarf að beita þá ofbeldi og handjárna þá á meðan ég bíð eftir að lögreglan mæti á svæðið.

Mæli reyndar með ströppum. Snilldar uppfinning og til margs nytsamlegar. Wink, wink.. know what I mean..

hehe

Nr. 3 | posted by: anna | 30.10.2004 | 3:56:57 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web