www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sweet nothing
Mánudagur, 04. október 2004

Hafði svo miklar áhyggjur af ástandi mínu að ég hringdi í lækninn minn, til öryggis. And guess what!

Jú.. eins og vanalega, þá er ekkert að mér. Við komumst að því eftir að hafa talað saman í hálftíma. Mundi ég allt í einu eftir því að.. svona er ég bara. Alltaf. Var bara búin að gleyma því.

Hann sagði mér að þetta væri eðlileg kölkun hjá fólki á mínum aldri, að gleyma svona hvernig maður er. Sagði mér að hætta að drekka allann þennan appelsínudjús og fá mér eitt mjólkurglas á dag og taka gingseng. En áréttaði að það væri ekkert að mér.

Ég fer bráðum að trúa því.

Nema hvað. Ég er ekki fyrr búin að skrifa há-dramatíska færslu um hvernig ég hætti að reykja og borða nammi fyrr en ég stend mig að brjálæðislegasta nammi fylleríi aldarinnar. Djöfull lýg ég. Ég hef farið á miklu verri nammi fyllerí en þetta á þessari öld. Bygons. Ég fékk mér 2 rolló og möndlukökusneið og prince póló.

Ég lýg vegna þess að ég get ekki annað. Ég get ekki farið að segja frá því sem ég er að gera eða hverja ég er að hitta eða hvernig mér líður. Ég get ekki sagt frá buxunum sem ég keypti í dag, sem eru of síðar. - Hey! Ég get víst sagt frá þeim! Ég keypti mér buxur í dag.. sem eru of síðar.

Það var fljót afgreitt.

Get reyndar sagt frá því þegar við Doddi vorum að keyra í rokinu áðan. Mér leið ekkert smá vel að vera á stórum bíl. Ég hefði líklega fengið hjartastopp eða alvarlegar hjarsláttartruflanir ef ég hefði verið á einhverri dós. Doddi spurði mig: "mamma.. getur bíllinn fokið?" "já", sagði ég, "ef það kemur nógu mikill vindur, en það gerist ekki." Þá spurði Doddi: "en mamma.. get ég fokið?" "Já", sagði ég, "þú getur fokið ef það kemur nógu sterkur vindur, en þú fýkur ekkert á meðan þú ert að leiða mig".

"Mamma.. getur þú fokið?"

DOH! Walked right into that one..


| anna | 21:22 |
comments

VÁ hvað mig langar í íslenskt nammi!!! weepy

Nr. 1 | posted by: Kristó | 5.10.2004 | 2:24:41 | [+] |

Ef pabbar geta grátið, þá geta mömmur fokið. laughing

Nr. 2 | posted by: Keli | 5.10.2004 | 3:42:27 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web