Þriðjudagur, 05. október 2004
Aha! Lausnin er fundin. Á buxnasíddinni sko. Ég er bara á stultum og málið er leyst.
Á föstudaginn ætla ég í klippingu. Ég hef reiknað það út, af vankunnáttu, að það taki mig ca 4 klippiskipti í viðbót áður en ég verð orðin all natural anna. Þ.e., með minn eigin hárlit í öllu hárinu. Ég hlakka soldið til. Langt síðan ég hef verið svoleiðis.
Annars frétti ég að þessi frábæra klippikona sem er búin að fara um hárið á mér höndum í s.l. tvö skipti sem ég hef látið klippa mig.. hún er að læra. Það veit aldrei á gott. Á föstudaginn ætla ég að fara með konfekt handa henni og blóm, krjúpa á skeljarnar og biðja hana að verða klippikonan mín þangað til dauðinn aðskilur okkur. Ég er tilbúin að borga vel og svart og get boðið upp á lélega aðstöðu heima hjá mér.
Ég bara meika það ekki, í alvöru, ef enn ein klippikonan fer frá mér.
Það er ekki á mig leggjandi.