Miðvikudagur, 20. október 2004
Í gær var ég spurð um það hvort ég gæti ekki framið sjálfsmorð. Mig langar ekkert sérlega að gera það. Samningaviðræður eru a.m.k. hafnar. Maður er náttúrlega líftryggður fyrir stórar fúlgur. Myndi alveg redda fjármálunum, þó ekki, því ég myndi halda áfram að lifa þannig séð.. bara ekki hér. Maður spyr sig: hverskonar líf er það???
Það er líka til í dæminu að ég myndi láta ræna mér. Fá til þess menn sem heita Bóbó og Lóbó. Ætla ekki að fara nánar út í hvað það hefði í för með sér, enda viðkvæmar sálir oft að lesa.