Laugardagur, 02. október 2004
Ég er að fara í partý í kvöld. Verð að segja að það eru aðrir hlutir ofar í huga mínum, en ætla að kíkja aðeins. Drekka eins og fjóra fimmfalda Bacardi í kók með twist og reykja pakka af Camel. Verð orðin verulega falleg eftir ca tvo klukkutíma.
Þá mun ég líklega tryllast, grýta glösum og sturta úr öskubökkum á hvít ullarteppi og brenna gat í gardínurnar með sígarettu sem ég mun sveifla móðursýkislega í kring um mig - af því gestgjafinn getur ekki spilað lagið sem mig langar að heyra. Brenni örugglega gat á einhverja gesti í leiðinni.
Þá ætti að vera kominn tími á að gubba í random tösku og hella mér svo yfir eiganda hennar og ausa viðkomandi svívirðingum.
Djö.. ég hlakka ekkert smá til.
Þessi maður hefur aldrei boðið mér í partý áður. Fólk virðist bara gera það einusinni.. og svo aldrei meir. Ég skil ekkert í þessu. Allir vita að það er ekki alvöru partý fyrr en eitthvað brotnar.
Ég tel mig hafa skyldum að gegna.
Eftir partýið ætla ég niðrí bæ. Á Nasa. Þar ætla ég að drepast á gólfinu við innganginn og þegar ég vakna, rétt fyrir lokun, ætla ég að fá móðursýkis/paranojukast og öskra í hálftíma áður en ég fer að gráta óhuggandi gráti. Kenna þeim sem reynir að hugga mig um alltsaman, þ.e. ef einhver þorir að hugga mig á annað borð. Ef engin reynir mun ég hella mér yfir bystanders. Best að ég reyni að skyrpa á þá líka.
Ég veit ekkert skemmtilegra en að gera vesen þegar ég fæ mér í glas. Öskra og brjóta hluti og gráta og kenna öllum öðrum um hvernig ég er. Enda.. let's face it.. það er allt hinum að kenna.
hehehe
Æj.. er þetta soldið óhugnarlegt?
Smá spaug. Ég verð voða stillt, eins og alltaf.