Óvænt? Varla...
Sunnudagur, 03. október 2004
Samt... unfuckingbelieveable.
Það er svo í öðrum fréttum að ég er komin heim. Lykta eins og reykherbergið í Iðnskólanum. Reykti þó ekkert í kvöld né drakk.
Var á bíl.
Ég spurði blaðamanninn nefnilega áðan hvað hann væri að fara að gera í kvöld vegna þess að ég ætlaði að fá mér í glas, þó ég ætlaði ekki á brjálað skrall, og ég fann hvergi pössun. Þar sem hann var upptekinn með jet settinu spurði ég hann ekki einu sinni. Ég fíla ekki að drekka þegar dóttir mín er að passa svo málið var dautt.
Þetta.. sem og önnur mál.
Held ég fari í bað að þvo af mér mestu reykingarlyktina. Aldrei þessu vant.. þá finnst mér hún ógeðslega vond.