Laugardagur, 30. október 2004
Hið ótrúlega hefur gerst. Ég vaknaði rétt áðan, tjahhh.. reyndar vaknaði ég fyrst klukkan hálf sjö en sofnaði aftur þegar ég sá hvað þetta var ókristilegur tími.. svo vaknaði ég í alvörunni rétt áðan og það sem átti sér stað fimm mínútum eftir að ég vaknaði á sér enga hliðstæðu.
Ég fór fram úr rúminu, gjörsamlega að frjósa úr kulda þar sem ég tætti mig úr öllum fötunum áður en ég fór að sofa í gær, eins og ég á til að gera, tiplaði á tánum að fataskápnum, opnaði og hvað haldiði að ég hafi ekki fundið, þrátt fyrir mikla leit? Jú... Vanilla Sky bol.
Þetta eru tímamót í lífi mínu.