Miðvikudagur, 27. október 2004
Á leið minni út í Bentley-inn rétt fyrir miðnætti gekk ég fram á nágranna minn, þennan sem kýldi mig um árið þegar ég spangólaði á fallega tunglið sem þá var fullt í það skiptið. Allar götur síðan hefur hann gefið mér afskaplega illt auga í hvert sinn sem hann sér mig og þegar leiðir okkar liggja saman í Melabúðinni beitir hann mig fantabrögðum. Klessir á mig með körfunni eða keyrir henni yfir tærnar á mér. Stundum hef ég séð hann setja alls kyns rusl í körfuna mína þegar hann heldur að ég sjái ekki til, eins og matarsóda, heilsutvennu og libresse dömubindi ekki með vængjum. Ég hef ekki skipt skapi í eitt einasta sinn sem mann andskotinn gerir þetta, held fullkomnu pókerfeisi. Ég rúla, Anna best og allt það.
Anyway. Í kvöld keyrði þó um þverbak þegar hann virti mig ekki einu sinni viðlits. Gekk í áttina til mín og lét eins og hann sæi í gegnum mig, rétt eins og ég væri ekki þarna beint fyrir framan hann. Segi nú bara eins og lufsan í Dangerous Liaisons: "I will not be ignored!" Þegar hann var komin nógu nálægt greip ég í jakkann sem hann var í og rykkti manninum til mín. "Ég er búin að fá upp í kok af merkilegheitunum í þér helvítis asni! Get látið þig vita að ég mun góla og ýlfra á þetta tungl twenty four seven ef mér dettur það í hug og ef ég heyri píp frá þér annað en "þakka þér fyrir Anna" þá ætla ég að eyða því sem ég á eftir ólifað í að senda þér syngjandi skeyti með LAGLAUSUSTU JÓÐLURUM NORÐAN ALPAFJALLA!", hvæsti ég á hann.. öskraði reyndar þetta síðasta.
Hvað haldiði að maðurinn hafi gert? Hann greip um axlirnar á mér, þrýsti mér upp að sér og kyssti mig. Vá hvað það var óvænt og vá hvað þessi nágranni minn kann að kyssa. Þegar hann var búinn.. sleppti hann takinu á mér og ég datt í götuna. Hnén á mér hætta að fúnkera þegar ég er kysst svona, göngulagið verður eins og hjá róna. "Æ.. fyrirgefðu", sagði hann og hjálpaði mér upp, "meiddir þú þig?" Það eina sem mér datt í hug að segja var: "já soldið, ertu til í að kyssa á bágtið?" Svo benti ég með vísifingri hægri handar.. á munninn á mér.