www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Moonstruck
Þriðjudagur, 26. október 2004

Það er alveg rosalega fallegt fullt tungl þarna úti í kvöld. Ætla út á svalir að góla á miðnætti, það er á hreinu! Nei bara smá djók, ég þarf að gera annað og meira áríðandi. Sulta rifsber. Nei bara smá djók. Bygons. Djöfull rugla ég.

Ég ætti kannski að hætta að forma setningar og blogga í stikkorðum eingöngu?

tungl, fallegt, gól, djók, sulta, aftur, djók, bilun, ekkert, nýtt.

Það er einhver mellow stemming í gangi hér á heimilinu. Doddi syngur með Billie Holiday og Jóhanna er að lesa. Vantar bara leðursófasett, arinn og skemil. Mann með pípu í hægindastól að lesa virt breskt dagblað, hesta í girðingu við austur álmuna og hunda tilbúna fyrir refaveiðarnar á morgun. Við erum reyndar nýkomin heim, vorum boðin í brjálæðislega góða eldbakaða Rizzo pítsu hjá frænku krakkanna. Það er vel þess virði að keyra uppí Árbæ og ná sér í svona. Ég borðaði gjörsamlega yfir mig.

Held ég taki Bentleyinn for a spin og kíki betur á þetta tungl, vonlaust að góla hér útá svölum. Á ekkert smá mongo nágranna í blokkinni á móti hvað það varðar...


| anna | 22:46 |
comments

Howwwwwlllll!!!

Nr. 1 | posted by: Hildigunnur | 27.10.2004 | 0:49:28 | [+] |

Jamm. Ég gólaði líka. Fólkið í blokkinni hélt að mér leiddist svona mikið að skúra sameignina. Þau sáu ekki tunglið hmmm

Nr. 2 | posted by: eva | 27.10.2004 | 17:15:57 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web