Miðvikudagur, 27. október 2004
Ég átti móment áðan. Var stödd við innkeyrsluna á bílastæðið við vinnuna mína þegar ég leit á klukkuna og sá að hana vantaði ennþá tíu mín í eitt. Ákvað að taka einn hring og klára að hlusta á lagið sem ég var að hlusta á.
Keyrði út á Suðurgötu og allt í einu flugu gæsir fram úr bílnum. Þær flugu svo lágt og fylgdu bílnum fullkomlega. Þetta var æðisleg sjón, sérstaklega þegar maður hefur séð myndina Le Peuple migrateur