Sunnudagur, 31. október 2004
Þegar ég fór á djammið á föstudaginn sleppti ég því að minnast á smá partí sem ég fór í á milli verðlaunaafhendingarinnar og Rex. Ég vissi ekki hvernig þetta partí yrði, hvort ég yrði þar lengi eða stutt.. eða hvað... svo ég helti Bacardi í límónu topp brúsa og tók með mér.
Ég blandaði mér eina blöndu í partíinu áður en ég fór niður í bæ. Var sumsé með fulla flösku af áfengi í töskunni. Þessi flaska var ennþá óhreyfð í töskunni minni þegar ég kom heim og ég setti hana á eldhúsborðið við hliðina á vaskinum og hugsaði: "best ég helli þessu bara aftur í bacardi flöskuna".. en komst ekki lengra. Letin og verkfælnin ná að drepa mig einn daginn.
Nú er rétt að ég taki fram að Doddi er með sull æði. Hann elskar að sulla inná baði og notar til þess alls kyns dollur, glös og flöskur. Í morgun, þegar ég kom frammúr, fann ég rosalega sterka lykt inná baði en pældi ekkert í því, var of upptekin við að fara að baka piparkökur. Núna rétt áðan greip ég tóma límónu topp flösku af eldhúsborðinu og fyllti hana af vatni. Fannst vatnið bragðast furðulega og gretti mig smá, Doddi varð vitni af þessu og sagði: "já mamma, þetta vatn er viðbjóður, VIÐBJÓÐUR".
Þrátt fyrir almenna tregðu á flestum sviðum áttaði ég mig á því að þarna hélt ég á flöskunni sem eitt sinn innihélt áfengið mitt. Ég hef ekki haft tíma til að spyrja drenginn hvað varð af Bacardi-inu sem var í flöskunni. Það er á hreinu að ekki drakk hann það allt en hefur þó greinilega smakkað ef marka má ummæli hans um téð vatn. Líklegast finnst mér að hann hafi hellt guðaveigunum í baðherbergisvaskinn, það er hans uppáhalds sullstaður, en þori þó ekki að sverja fyrir það vegna þess að hann á það til að fylla alls kyns ílát með vatni og setja þau t.d. upp í hillu eða inn í fataskáp.
Kemur ekkert rosalega vel út fyrir mig.. ef einhver finnur bacardi í barnavítamínglasi ofaní nærbuxnaskúffu.
Ég er að átta mig á því að ég þarf að setjast niður með drengnum og fá á hreint hvað varð af búsinu. Það er eiginlega deginum ljósara.
--
Update.
Hvorugt barnið mitt kannast við að hafa handleikið þessa flösku svo líklega hef ég hellt þessu niður sjálf. Ég er snillingur.
Ég er aðallega fegin að það sé ekki bacardi í smáskömmtum hér og þar út um alla íbúð ala Doddi.